Jón Gerald fór með hreinan spuna 17. febrúar 2006 18:45 MYND/GVA
Jón Gerald Sullenberger fór með hreinan spuna við yfirheyrslur hjá lögreglu. Þetta segir fyrrverandi tengdasonur Jóhannesar Jónssonar í Bónus, en hann rak Pizza Hut, sem var í eigu fjölskyldunnar og átti í viðskiptum við Jón Gerald. Jón Garðar Ögmundsson, sem giftur var Kristínu Jóhannesdóttur, var fyrsta vitnið sem leitt var fyrir dóm vegna Baugsmálsins svokallaða. Aðalmeðferð í málinu hefst ekki fyrr en á mánudag, en þar sem Jón Garðar gat ekki verið viðstaddur, var ákveðið að taka skýrslu af honum í dag. Hann sagðist fyrir dómi hafa fengið Jón Gerald Sullenberger til að kanna fyrir sig möguleika á kaupun á deigi og fleiru fyrir Pizzapönnuna, sem rak Pizza Hut, þar sem hagstæðara gæti verið að kaupa slíkt frá Bandaríkjunum. Þegar til átti að taka kom hins vegar í ljós að ekki var um sambærilega vöru að ræða og varð því ekkert af viðskiptunum. Hann hafi greitt Jóni Gerald $ 23.970 eða um IKR.1,7 milljónir og að það hafi verið eðlileg þóknun. Hann var spurður, bæði af saksóknara og verjanda Kristínar um bílakaup frá Bandaríkjunum og hvort að umrædd greiðsla hafi tengst þeim, en Jón Garðar vísaði því á bug. Verjandi Kristínar bar undir hann skýrslu sem Jón Gerald hafði gefið hjá lögreglu, þar sem hann sagðist aldrei hafa unnið fyrir Pizzapönnuna og greiðslan hefði verið vegna bílakaupa. Jón Garðar sagði þá nafna hafa þekkst og átt í viðskiptum í hálfan annan áratug og undraðist hann framburð Jón Geralds og sagði hann í lögregluskýrslunni fara með hreinan spuna.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira