Fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir manndráp 17. febrúar 2006 15:21
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Sigurð Frey Kristmundsson í fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir að bana Braga Halldórssyni í íbúð við Hverfisgötu í ágúst síðastliðnum. Sigurður Freyr stakk Braga með hnífi í brjóstholið með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar. Að morgni laugardagsins 20. ágúst barst lögreglunni tilkynning um að maður hefði verið stunginn í hjartastað í íbúð við Hverfisgötu. Þrennt var handtekið en þremenningarnir voru í íbúðinni þegar atburðurinn átti sér stað. Bragi var meðvitundarlaus þegar lögregla kom á staðinn og var hann fluttur á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi þar sem hann lést um klukkustund síðar. Sigurður sagði fyrir dómi að smávægilegt rifrildi hafi komið upp á milli hans og Braga sem endað hefði með fyrrgreindum afleiðingum. Sigurður rauk því næst út úr íbúðinni að sækja hjálpa að eigin sögn. Lögregla hafði upp á honum stuttu síðar en hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá handtöku. Sigurður játaði fyrir dómi að hafa orðið Braga að bana en hann neitaði að um ásetning hefði verið að ræða. Sigurður var í mikilli fíkniefnaneyslu á þessum tíma en að eigin sögn hafði hann verið búinn að vaka meira og minna í tvær vikur og því veruleikafirrtur og í annarlegu ástandi. Samkvæmt krufningarskýrslu lést Bragi af völdum stungu í hjarta og lifur. Eins og fram kemur í dómnum er ekki vitað hvort hann hafi verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna, vegna mikillar blóðgjafar og annarra vökva á meðan á aðgerð stóð á slysadeild. Rannsókn geðlæknis leiddi í ljós að Sigurður væri sakhæfur. Þrátt fyrir að hann hafi verið í mikilli fíkniefnaneyslu á þessum tíma þótti dómurum ljóst að hann hefði sjálfur komið sér í það ástand og því leysti það hann ekki undan refsiábyrgð. Sigurður var dæmdur til að greiða um 6,9 milljónir króna í skaðabætur, þóknun, sakakostnað og málsvarnarlaun. Hluti af refsingunni er vegna fimm umferðarlagabrota og þjófnaðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira