Lögum um þagnarskyldu verði breytt ef þurfa þykir 9. febrúar 2006 15:51 MYND/GVA
Lagaákvæðum um þagnarskyldu heilbrigðisstétta verður breytt ef þau eru ekki nógu skýr varðandi það hvort stéttunum beri að tilkynna lögreglu um lögbrot sjúklinga sinna, sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag. Hann telur sjálfur ákvæðin nógu skýr og að læknum beri að tilkynna um lögbrot sjúklinga sinna. Þetta kom í utandagskrárumræðum um aðgerðir gegn fíkniefnaneyslu í landinu sem Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf. Tekist var á um það hvort stjórnvöld hefðu gert nógu mikið til að berjast gegn fíkniefnadjöflinum og áfengisneyslu í landinu en bent var á að hún hefur aukist um 40 prósent á síðustu tíu árum á Íslandi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra var einnig spurður um afstöðu sína til þagnarskyldu heilbrigðisstétta þegar kemur að smygli fíkniefna innvortis, en eins og greint hefur verið frá í fréttum hafa burðardýr fíkniefna leitað til lækna vegna iðrastíflu. Landlæknir hefur lýst því yfir að afnema beri þagnarskyldu í slíkum málum en ráðherra telur lagaákvæðin skýr í þessum efnum. Læknum beri í þessum tilvikum að tilkynna lögreglu lögbrot þeirra sem til þeirra leita. Þurfi hins vegar að áliti lögspekinga að gera lagaákvæði skýrari til að tryggja þetta verði það gert.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Fleiri fréttir „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Sjá meira