Auglýsing Stefáns Jóns aftur í spilun 8. febrúar 2006 15:09 Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi MYND/Vilhelm
Auglýsingadeild 365 hugðist stöðva birtingu á útvarpsauglýsingu frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, á þeirri forsendu að þar var verið að auglýsa dagskrárlið á annarri útvarpsstöð. Sættir náðust hins vegar í málinu í gærkvöld. Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi, sem sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík um næstu helgi, sendi frá sér tilkynningu í gærkvöld þar sem hann greinir frá því að auglýsingadeild 365-miðla hygðist stöðva birtingu á auglýsingu á útvarpsstöðvum í eigu fyrirtækisins. Í auglýsingunni kemur fram að fólk geti spurt Stefán Jón, í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu, um málefni í tengslum við framboð hans á hverjum degi fram að prófkjörinu, og var auglýsingin spiluð á þremur útvarpsstöðvum í eigu 365 í gær og fyrradag. Í tilkynningu Stefáns Jóns segir að útskýring auglýsingastjóra 365-miðla, Kristjáns Þóris Haukssonar, á ákvörðuninni væri sú að auglýsingin færi hlustendur frá útvarpsstöðvum 365. Í samtali við fréttamann í morgun staðfesti Kristján Þórir að auglýsingadeildin hafi farið fram á það við kosningastjóra Stefáns Jóns að orðalagi í auglýsingunni yrði breytt, og ásteytingarsteinninn hafi verið sá að verið væri að hvetja hlustendur til að skipta á útvarpsstöð annars fyrirtækis. Hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Stefán Jón sagði í tilkynningunni í gærkvöld að ákvörðunin hafi verið í hæsta máta vafasöm, og reyndar svo óskiljanleg að telja yrði víst að hún yrði tekin til endurskoðunar. Frambjóðandinn reyndist þar sannspár því seinna um kvöldið tilkynnti auglýsingastjóri 365-miðla honum það að auglýsingin yrði birt áfram í óbreyttri mynd, og því félli engin fyrirhuguð spilun á henni niður. Í samtali við NFS í morgun sagði Stefán Jón að beðist hafi verið afsökunar á uppákomunni, sú beiðni hafi verið tekin til greina og málinu því lokið af hans hálfu.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira