Tryggingafélög virðast brjóta lög 7. febrúar 2006 19:09
Tryggingafélögin virðast brjóta lög með því að neita fólki um sjúkratryggingar gegn ákveðnum sjúkdómum á grundvelli upplýsinga um arfgenga sjúkdóma foreldra og systkina. Persónuvernd segir að friðhelgi einkalífsins sé ekki virt og Fjármálaeftirlitið skoðar framkvæmd þessara mála. Eins og kom fram í fréttum okkar í gær hafa tryggingafélög fellt ákveðna sjúkdóma út úr sjúkratryggingum fólks sem á foreldra með ólæknandi sjúkdóma eins og MS og MND. Þá eru einnig dæmi um slíkt vegna hjarta og æðasjúkdóma og brjóstakrabbameins. Formaður félags MS sjúklinga sagði þetta hneyksli og afar sársaukafullt að aðstandendum sjúklinga væri refsað á þennan hátt. Persónuvernd gerði öryggisúttekt á tryggingafélögunum í ágúst, og Særún María Gunnarsdóttir lögfræðingur hjá Persónuvernd segir að stofnunin hafi komist að þeirri niðurstöðu að óheimilt væri að biðja viðskiptavini um uppýsingar um arfgenga sjúkdóma foreldra og systkina. Þau áttu samkvæmt tilmælum Persónuverndar að hætta að biðja um þessar upplýsingar ekki seinna en fyrsta janúar árið 2006. Einstaklingar sem höfðu samband við fréttastofu í dag og gær höfðu hinsvegar fengið slíka synjun í janúar. Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með vátryggingastarfsemi. Óheimilt er samkvæmt lögum um vátryggingar að óska eftir eða afla með einhverjum öðrum hætti, taka við eða hagnýta sér upplýsingar um erfðaeiginleika manns eða áhættu á því að hann þrói með sér eða fái sjúkdóma. Jónas Friðrik forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir að stofnunin sé þessa dagana að afla upplýsinga um framkvæmd þessara laga hjá Tryggingafélögunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira