Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf harmar orð biskups 13. janúar 2006 14:11 Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson MYND/Vilhelm
Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf, ÁST, harmar orð biskups Íslands, herra Karls Sigurbjörnssonar, í sjónvarpsviðtali á NFS 2. janúar síðastliðinn þar sem hann ræddi um hjónabandið í tengslum við fram komna tillögu á Alþingi en hún lýtur að frjálsri heimild til forstöðumanna trúfélaga til að sinna þeim löggerningi að staðfesta samvist samkynhneigðra í kirkju. Í yfirlýsingu frá ÁST segir að í áðurgreindu viðtali, sem og í áramótapredikun biskups, hafi hann hvatt til þess að löggjafarvaldið hugsaði sinn gang. Orðrétt hafi biskup Íslands sagt í viðtali við NFS að „... hjónabandið ætti það inni hjá þjóðinni að því sé ekki kastað á sorphaugana. Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf segir í yfirlýsingu sinni að ekki sé hægt að túlka þessi ummæli biskupsins á annan hátt en þann að biskup líti á hjónabandið sem sorphaug ef hommar og lesbíur geti farið með heit sín og staðfest samvist sína í guðshúsum þjóðkirkjunnar. Áhugahópurinn skorar á Alþingi að samþykkja þær breytingatillögur á lögum um staðfesta samvist og lögum um stofnun og slit hjúskapar, sem Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður Samfylkingar, hefur boðað í tengslum við frumvarp um lagabreytingar er varða réttarstöðu samkynhneigðra. Réttaráhrif tillagna hennar miði að því að prestar og forstöðumenn trúfélaga geti staðfest samvist homma og lesbía í guðshúsum sínum með löggerningi ef þeir óska eftir því.
Fréttir Innlent Mest lesið Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Fleiri fréttir Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Sjá meira