Misskilningur hjá umboðsmanni Alþingis 12. janúar 2006 20:05 Forstjóri Náttúrufræðistofnunar segir ekkert óeðlilegt við styrk sem stofnunin fékk til rjúpurannsókna. MYND/KK
Forstjóri Náttúrufræðistofnunar segir álit umboðsmanns Alþingis um úthlutun úr svokölluðum veiðikortastjóði byggt á misskilningi. Hann segir engan sjóð til heldur sé um að ræða greiðslur fyrir veiðikort. Í fréttum NFS hefur verið sagt frá því að Náttúrufræðistofnun fékk 6,6 milljónum króna úthlutað til rjúpnarannsóknaverkefnis úr veiðikortasjóði án þess umsóknafrestur í sjóðinn væri liðinn. Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri Umhverfisráðuneytisins sagði í fréttum í gær að þennan háttinn hafi þurft að hafa á við úthlutun þetta árið þar sem búið hafi verið að lofa peningunum í verkefni sem þegar hafi verið unnið af Náttúrfræðistofnun. En þar sem í áliti umboðsmanns Alþingis segi að það verklag sem haft hafi verið stangist á við lög sagði Ingimar að við næstu úthlutun þyrfti Náttúrufræðistofnun að fara sömu leið og aðrir umsækjendur. "Það er mín skoðun að þetta álit, þessi úrskurður umboðsmanns Alþingis sé byggður á misskilningi," segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar. "Hann er byggður á röngum forsendum vegna þess að í úrskurðinum segir að þegar stjórnvald hafi heimild til að úthluta styrkjum af opinberu fé til einhvers verkefnis þar sem viðtakandi liggur ekki fyrir þá eigi að auglýsa. En í þessu máli liggur alveg kvitt fyrir hvaða stofnanir eiga að vinna þau verk eða fjalla um sem gjaldið rennur til." Jón Gunnar segir eiginlegan sjóð um veiðikortagjaldið ekki til og fyrir liggi í lögum í hvað eigi að nota peningana. "Það eru tilteknir fjórir þættir, það er rannsóknir og vöktun á villtum dýrum og stýring á þeim og útgáfa veiðikorta. Það er aldrei talað um neinn sjóð. Okkur skiptir ekki meginmáli hvaðan peningarnir koma. Okkur ber í þessu tilfelli með rjúpuna að vakta hana, stunda ákveðnar rannsóknir, meta ástand stofnsins og vera ráðherra og ráðuneyti til ráðgjafar." Þá er forstjóri Náttúrufræðistofnunar ósammála umboðsmanni Alþingis um að það þurfi að auglýsa eftir umsóknum um fé úr sjóðnum. Hann telur þá ákvörðun byggða á misskilningi og engar kvaðir vera um auglýsingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira