Svipti sig lífi eftir ásakanir um kynferðisbrot 10. janúar 2006 18:30
Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann. Á forsíðu DV í morgun var birt mynd af karlmanni með fyrirsögninni „Einhentur kennari sagður nauðga piltum“. Fréttin fjallaði um kæru tveggja pilta á hendur manninum fyrir kynferðislegt ofbeldi. Sjálfur sagði maðurinn málið byggt á misskilningi. Þrátt fyrir að enginn dómur hafi fallið í málinu sem í raun er á frumstigi og að orð standi gegn orði, taldi DV rétt að birta mynd af manninum á forsíðu. Í morgun fann vinur mannsins hann á heimili hans og hafði hann þá tekið eigið líf. Bróðir mannsins sagði í samtali við fréttastofu að fjölskyldan væri sundurtætt af sorg vegna þessa harmleiks. Hann sagðist hafa hringt á ritstjórn DV í dag til að tilkynna þeim andlát bróður síns og fundist rétt að gera það, þar sem hann teldi að fréttaflutningur DV hefði nánast rekið bróður sinn í dauðann. Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV sagðist ekki vera beinn málsaðili að málinu og því vildi hann ekki tjá sig um það þegar fréttastofa hafði samband við hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira