Álver á Norðurlandi fjórða í röðinni 9. janúar 2006 20:35
Álver á Norðurlandi stefnir í að verða númer fjögur í röð framkvæmda við frekari álversuppbyggingu hérlendis. Nýtt álver í Helguvík og meiri stækkun í Straumsvík og á Grundartanga verður líklega ofar á listanum en álver á Norðurlandi. Smíði álversins á Reyðarfirði samhliða gerð Kárahnjúkavirkjunar eru taldar mestu framkvæmdir Íslandssögunnar en þær munu ná hámarki næsta sumar og ljúka á næstu tveimur árum. Jafnframt standa yfir miklar framkvæmdir við stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga en þeim fylgja framkvæmdir við jarðgufuvirkjanir á Nesjavöllum, Hellisheiði og Reykjanesi. Þegar spurt er hvaða stóriðjuframkvæmd verður næst á dagskránni má ætla á umræðunni að röðin komi næst að Norðurlandi. Ný áætlun Landsvirkjunar um að raforka fyrir álver á Norðurlandi verði ekki tilbúin fyrr en 2012 setur hins vegar þrenn önnur stóriðjuáform fram fyrir Norðurland. Lengst eru komin áform um frekari stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga. Áform um byggingu álvers í Helguvík eru komin á fleygiferð en fulltrúar Reykjanessbæjar, Norðuráls og ríkisins rituðu nýlega undir aðgerðaáætlun um að þarna rísi 250 þúsund tonna álver. Alcan í Straumsvík áformar líka álversframkvæmdir og vill stækka verksmiðju sína í allt að 420 þúsund tonn. Þegar þessi áform eru sett í tímasamhengi stefnir í að stækkun á Grundartanga verði sett í framkvæmd á árunum 2006 til 2008, álver í Helguvík geti risið á árunum 2008 til 2010 og stækkun í Straumsvík staðið yfir á sama tíma. Álver á Norðurlandi, sem líkast risi við Húsavík, kæmi hins vegar á eftir öllum hinum og yrði byggt á árunum 2010 til 2012.
Fréttir Innlent Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Fleiri fréttir Tugir vilja feta í fótspor Fannars Ómerktir í von um að góma vasaþjófa Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Sjá meira