Ber botn og djöfullinn á borðum landsmanna 7. janúar 2006 12:40 Mynd/Hari
Ber botn og djöfullinn er eitthvað sem stundum sést á borðum landsmanna og þá sem teikningar aftan á mjólkurfernum. Flestir láta sér þetta í léttu rúmi liggja, en öðrum er ekki skemmt. Sæt er lykt úr sjálfs rassi er einn þeirra málshátta sem er túlkaður með teikningu aftan á mjólkufernum. Á myndinni sést maður sem berar á sér afturendann og þefar að eigin prumpi. Ekki eru allir jafn hrifnir af þessari mynd og gagna sumir svo langt að henda fernunni og framreiða mjólkusopann í könnu í stað þess að hafa beran afturenda á borði sínu. Rassamyndin er ein þeirra 62 mynda sem birtast aftan á mjólkurfernum, auk sjálfs djölfulsins. Myndirnar eru hluti af svokölluðu Fernuflugi sem Mjólkursamsalan stóð að árið 2004 í samstarfi við íslenska málnefnd og málstöð. Tilgangurinn með Fernufluginu er meðal annars að vekja umræðu um íslenskt mál. Grunnskólabörn teiknuðu myndir við málshætti og orðtök og sendu inn til keppni. Alls bárust 2500 tillögur inn í keppnina og þær bestu enduðu á mjólkurfernum. En hver ræður því hvaða myndir fara á mjólkurfernur? Baldur Jónsson, markaðsstjóri MS, segir að sérstök dómnefnd hafi valið myndirnar. Hann segir að í sumum tilvikum hefðu margar myndir hefðu borist með sama málshættinum en þá hefði verið valin besta útfærslan hverju sinni. Baldur sagði að dómnefndin hefði meðal annars farið eftir kímni og hugmyndaflugi í túlkun barnanna á málsháttunum. Myndirnar 62 birtast á alls 40 milljónum ferna á tveimur árum og hver mynd um 600.000 sinnum. Það er því eins gott að vanda val sitt á jólkurfernum, sé maður vandlátur á það sem fyrir augu ber við matarborðið.
Fréttir Innlent Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Fleiri fréttir Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár Sjá meira