Takmarkaðir vöruflutningar víða um land vegna hláku 5. janúar 2006 22:17
Vöruflutningar um helstu samgönguleiðir landsins, þar á meðal á milli Reykjavíkur og Akureyrar, hafa verið takmarkaðir vegna aurbleytu og hættu á slitlagsskemmdum. Hver trukkur verður að skerða farm sinn um allt að fimm tonn í hverri ferð. Við kannski leggjum fæst við hlustir þegar við heyrum tilkynningu um þungatakmarkanir á þjóðvegum frá Borgarnesi um Vesturland, Vestfirði og Norðurland vestra. Fyrir flutninganet landsins og sérstaklega alla stóru trukkana hefur þetta hins vegar mikil áhrif. Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskips , segir þungatakmarkanirnar vera slæmt mál. Flutningabíla megi ekki flytja meira en fimm tonn í fer þegar þungatakmarkanir séu í gildi. Og það var ekki bara um að ræða gamla malarvegi í afdölum heldur var Vegagerðin í gær að takmarka leyfilegan hámarksfarm á mikilvægustu flutningaleiðum innanlands. Guðmundur segir það mjög athyglisvert að þungatakmarkanir séu á flutningaleiðinni milli Norðurlands og Reykjavíkur árið 2006 og það um miðjan vetur. Þetta sé mjög einkennilegt. Fyrir hvern bíl geti þetta þýtt tekjuskerðingu um tugi þúsunda króna í hverri ferð. Þegar haft er í huga að helstu flutningafyrirtækin eru með yfir 300 flutningabíla í stöðugum ferðum milli landshluta geta þetta roðið háar fjárhæðir þegar saman safnast og mikið umstang því gámur sem fæst ekki fullnýttur á bíl frá Húsavík til Reykjavíkur gæti verið á leið áfram með skipi út í heim. Guðmundur segir það ekki bara slæmt að þeir geti flutt minna magn í hverri ferð heldur þurfi að fara í gegnum innihald hvers gáms sem kemur hingað til lands til að gera klárt fyrir framhaldsflutning á leiðarenda hvar sem er í heiminum. Að mati Guðmundar er aðeins ein lausn á málinu og það er að gera breiðari og sterkari vegi.
Fréttir Innlent Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira