Ein flugbraut nægir ekki 9. maí 2006 19:15
Ein flugbraut nægir ekki á Reykjavíkurflugvelli, að mati hollenskra ráðgjafa, sem telja að austur-vestur flugbraut verði að vera aðalflugbraut vallarins og liggja að miklu leyti í sjó fram utan núverandi flugvallargirðingar, ef losa eigi umtalsvert svæði í Vatnsmýri til annarra nota.Nýr flugvöllur á uppfyllingu á Lönguskerjum eða nýr flugvöllur á Hólmsheiði hafa verið áberandi í umræðunni en minna verið rætt um breyttar útfærslur á flugvellinum á núverandi stað. Samráðsnefnd ríkis og borgar um framtíð Reykjavíkurflugvallar fól hollensku ráðgjafafyrirtæki á sviði flugmála að gera flugtæknilega úttekt á vellinum í Vatnsmýri en markmiðið var að svara spurningum eins og hvort unnt sé að reka völlinn þar með einni flugbraut og hver þurfi að vera lágmarksstærð flugbrauta og athafnasvæðis ef völlurinn eigi að þjóna hlutverki sem miðstöð innanlandsflugs.Hollensku ráðgjafarnir hafa nú komist að þeirri niðurstöðu að ein flugbraut nægi ekki, þar sem nýting vallarins verði innan við 80 prósent, vegna breytilegra vindátta. Jafnframt telja hinir erlendu ráðgjafar að austur-vestur brautin verði að vera aðalflugbraut vallarins vegna tíðni vindátta. Þeir telja að vilji menn losa umtalsvert svæði í Vatnsmýri til annarra nota en flugstarfsemi þá verði að færa austur-vestur brautina út fyrir núverandi flugvallargirðingu. Hin nýja austur-vestur braut verði þá að liggja að miklu leyti í sjó fram.Ein af þremur hugmyndum sem þeir sýna er L-laga flugvöllur, en þessi hugmynd var einnig kynnt af samgönguyfirvöldum fyrir flugvallarkosninguna á sínum tíma. Þessa leið sér forseti Flugmálafélags Íslands, Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Atlanta-flugfélagsins, sem líklega sáttalausn en með henni er talið að taka megi yfir 70 hektara af flugvallarsvæðinu undir aðra starfsemi.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira