Þyrluæfing skaðar æðarvarp 13. júní 2006 08:00
Lýður Jónsson, sem annast hefur æðarvarpið í Engey í nokkur ár, segir æðarvarpið í molum eftir æfingu Slysavarnaskólans nú fyrir helgi. Lýður varð vitni að æfingunni og segir þyrluna hafa sveimað um eyjuna í einhvern tíma áður en hún lenti. "Þetta fælir kolluna frá hreiðrunum og vargurinn kemst óáreittur í eggin og hann lætur ekki bjóða sér það tvisvar," segir Lýður. Hann segir varpið í eyjunni í sumar hafa lofað góðu, en nú blasi við hrun. Að sögn Ólafs K. Nielsen, fuglafræðings hjá Náttúruverndarstofnun, er æðarvarp mjög viðkvæmt fyrir allri umferð. Hann segir landeigendur þurfa að friðlýsa vörpum til að koma í veg fyrir umferð en þó séu óskrifaðar reglur um umgengni við æðavörp og það að lenda þyrlu í námunda við æðarvarp sé út í hött. Til dæmis er stór hluti Viðeyjar lokaður fyrir gangandi umferð gesta yfir varptímann. "Það er til dæmis bannað við fuglavörp að þeyta skipslúðra, svo viðkvæmt er varpið," segir Ólafur. Ólafur fordæmir atvikið, sér í lagi vegna þess að æðarvarpið sé í hámarki um þessar mundir. Æðarfuglinn verpi í fyrri hluta maí við Faxaflóann og sé nú að klekja. Hann segir jafnframt þetta atvik geta haft áhrif á varpið næsta sumar. "Það er vitað af fyrri reynslu þar sem að æðarkollan hefur orðið fyrir mikilli truflun, hún fer að skynja ákveðið óöryggi og hagar sér samkvæmt því og leitar að ári í önnur vörp", segir Ólafur. Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskólans, segir að í æfingum sem þessari sé yfirleitt notast við minni þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF. Henni þarf ekki að lenda við æfingarnar en vegna bilunar sem kom upp hafi þurft að nota þá stærri, TF-LÍF, sem þarf að lenda til að ljúka æfingunni. Hann segir að í þeim tilfellum sem stærri þyrlan sé notuð reyni flugmenn gæslunnar eftir fremsta megni að lenda þyrlunni þar sem hún valdi hvað minnstu raski. Hann telur að um eitt og hálft ár sé síðan stærri þyrlan hafi lent í Engey við æfingar af þessu tagi.
Innlent Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Fleiri fréttir Lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Sjá meira