Innlent

Sýknaður af líkamsárásarkæru

Karlmaður var í gær sýknaður af ákærum um líkamsárás á konu á skemmtistaðnum Players í Kópavogi í nóvember síðastliðnum. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa veist að konunni inni á klósetti þannig að hún hlaut eymsli og bólgur hægra megin í andliti, glóðarauga og sprungu eða brot í augnbotni. Þar sem framburður vitna var misvísandi þótti sekt mannsins ekki hafin yfir allan vafa og var hann því sýknaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×