Landsflug krafið skýringa 17. febrúar 2006 20:01 Dornier vél Landsflugs. MYND/Vilhelm Gunnarsson
Heilbrigðisráðuneyti og bæjarstjórn Vestmannaeyjarbæjar hafa krafið Landsflug um skýringar á því hvers vegna sjúkraflugvél hafi ekki verið til staðar tvívegis á tveimur dögum þegar hennar var þörf. Framkvæmdastjóri Landsflugs segir félagið hafa staðið við skuldbindingar sínar og auk þess hafi ekki verið um bráðaútköll að ræða í umræddum tilvikum. Á þriðjudag leið rúm klukkustund frá því sjúkraflug var pantað fyrir fárveikt tveggja ára gamalt barn í Vestmannaeyjum þar til flugvél lenti í Eyjum. Það var svo í gærmorgun sem vél var heldur ekki til staðar þegar útkall varð. Maður hafði beinbrotnað og gisti hinn slasaði á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum yfir nótt, og þá var kallað eftir vél en engin slík var til staðar. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Vestmanneyjabæjar, segir ljóst að Eyjamenn sætti sig ekki við slíkt ástand. Skilyrt sé í samning um sjúkraflug að vél eigi alltaf að vera til taks í Eyjum. Bergur Elí a s segir Vestmannaeyjabæ og Heilbrigðisráðuneyti óska eftir skýringum frá Landsflugi. Rúnar Fossádal Árnason, framkvæmdastjóri Landsflugs, segir að þeim fyrirspurnum verði svarað eftir helgi. Hann segir félagið hafa staðið við sínar skuldbindingar hvað varðar sjúkraflug til Eyja síðan það tók við því eftir áramót. Vél félagsins hafi verið í viðgerð í Reykjavík í þrjár nætur en komið aftur til Eyja í dag. Á meðan hafi verið sjúkravakt í Reykjavík. Ekki hafi verið hægt að senda aðra, stærri vél félagsins til Eyja þessa dag þar sem ekki sé hægt að hýsa þar sem stendur. Sótt hafi verið um lóð í Vestmannaeyjum fyrir flugskýli. Sú umsókn hafi ekki verið afgreidd enn. Bergur Elías segir þá umsókn verða tekna fyrir eins hratt og vel og hægt verði.
Fréttir Innlent Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira