Forréttindi að fara með 2. desember 2006 10:30 Kristján M. Atlason hafði aldrei verið í hjálparstarfi áður en skellti sér til fátækrahverfis í Naíróbí í sumarfríinu. MYND/Brink
Kristján M. Atlason fór í óhefðbundið sumarfrí í ár. Hann slóst í för með útsendara ABC hjálparstarfs og hélt til stærsta fátækrahverfis Afríku í Naíróbí í Keníu. „Ég hef unnið eins og brjálæðingur undanfarin ár, þannig að ég átti sjö vikna sumarfrí," sagði Kristján í samtali við Fréttablaðið. „Mér fannst vonlaust að fara að húka á Kanarí eða einhverjum álíka stað í sjö vikur, svo ég lét það fréttast að ég hefði áhuga á hjálparstarfi," sagði hann. Kristján, sem vinnur hjá Samskipum, komst í samband við Þórunni Helgadóttur, kynningarstjóra ABC, sem var á leið til Kenía til að koma starfsemi ABC af stað þar. Kristján hafði aldrei komið að hjálparstarfi áður, en fannst tími til kominn að kynna sér stöðuna í heiminum. Þegar til Kenía var komið hófu Kristján og Þórunn að taka viðtöl við aðstandendur þeirra barna sem komu til greina í stuðningsforeldrakerfi ABC. „Við reyndum að finna þau börn sem áttu um sárast að binda," sagði Kristján. Hann sagðist hafa heyrt óendanlega margar og erfiðar sögur og fullt var út úr dyrum í húsnæðinu sem þau Þórunn höfðu til umráða eftir að vera þeirra í fátækrahverfinu spurðist út. „Þarna er rosalega fátækt, fullt af vannærðum börnum sem mörg hver hafa misst foreldra sína úr eyðni. Við hittum líka konu sem hafði lent í því að maðurinn hennar hélt fram hjá henni og smitaði hana svo af eyðni. Þegar hann komst að því að hún var smituð yfirgaf hann fjölskylduna," sagði Kristj án, sem er nú stuðningsforeldri barna konunnar. Hann heimsótti einnig flóttamannabúðir í Norður-Úganda, þar sem ABC hefur starfað í samvinnu við samtökin Australia-Uganda Foundation. „Þar há Joseph Kony og Lord's Resistance Army hræðilegt stríð," sagði Kristján sem kvaðst hafa heyrt skelfilegar sögur af framgöngu hersins. „Þeir dreifa eyðni og kaupa ungar stúlkur fyrir brennivín," sagði Kristján. „Þó að börnin í Kenía byggju í fátækrahverfi var stutt í brosið hjá þeim og þau brugðu á leik fyrir myndavélina. Börnunum í Úganda stökk ekki bros, þau voru bara alveg frosin," sagði hann. Kristján segist nú treysta ABC fullkomlega. „Mér fannst algjör forréttindi að fá að fara með," sagði Kristján, og bendir að lokum á að nánari upplýsingar um starfið sé að finna á heimasíðu ABC barnahjálpar, www.abc.is. Kristján sagði börnin í Norður-Úganda bera hörmungarnar sem þau hafa upplifað með sér. . Þó að neyðin væri mikil í fátækrahverfinu í Naíróbí var stutt í brosið hjá börnunum. .
Mest lesið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Lífið Fleiri fréttir Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Stjörnulífið: Sjóðheit og löng helgi Sly Stone er látinn Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Sjá meira