Ríkisskattstjóri staðfestir að skattar hafa hækkað 21. febrúar 2006 21:30
Ríkisskattstjóri staðfestir tölur Landssambands eldri borgara um að skattbyrði þeirra sem hafa lægst laun eða ellilaun hafi hækkað síðustu ár. Þetta kemur til af því að skattleysismörk hafa ekki fylgt vísitölu neysluverðs eða launaþróun í landinu að sögn hagfræðings Landssambands eldri borgara. Ef raungildi hundrað þúsund króna mánaðarlauna er reiknað samkvæmt vísitölu neysluverðs aftur til ársins 1988 sést að þá féll sú upphæð undir skattleysismörk og því var enginn tekjuskattur lagður á þau laun. Síðan hefur þetta hækkað jafnt og þétt og í dag greiða ellilífeyrisþegar tæp níu og hálft prósent af þessari sömu upphæð í tekjuskatt. Þetta þýðir að lægra hlutfall launa fellur í dag undir skattleysismörk, þ.e. skattleysismörk eru lægri að raungildi heldur en þau voru þegar þau voru árið 1988. Einar Árnason, hagfræðingur Landssambands eldri borgara, segir flestalla sérfræðinga, hvort sem er í Háskóla Íslands, hjá Ríkisskattstjóra eða annars staðar, vera sammála þeim niðurstöðum að skattbyrði hafi hækkað á þeim lægst launuðu. Það sé aðeins Fjármálaráðuneytið og aðrir stjórnarliðar sem haldi því fram að skattar hafi lækkað. Hann segir það einungis eiga við um hálaunafólk en hinir sem fái lægri laun séu verr settir en áður. Í útreikningum fjármálaráðuneytisins sé miðað við fasta krónutölu í stað þess að launatala sé látin hækka í réttu hlutfalli við vísitölu neysluverðs, sem sé rökleysa, en að þannig takist þeim að fá út þær niðurstöður sem þeir vilji.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Sjá meira