Furðuleg ástríða fyrir enska boltanum 12. desember 2006 14:00 Róbert Douglas vinnur að gerð heimildarmyndar um ástríðu Íslendinga fyrir enska boltanum.
Leikstjórinn Róbert Douglas er nú að vinna að því að gera heimildarmynd um hina merkilegu ástríðu íslenskra knattspyrnuáhugamanna á enska boltanum sem mörgum þykir alveg séríslenskt fyrirbæri. Knattspyrnan hefur lengi leikið stóran sess í kvikmyndum Róberts og nægir þar að nefna Strákana okkar sem fjallaði um samkynhneigt knattspyrnulið. Róbert var staddur í London þegar Fréttablaðið hafði tal af honum og sagði leikstjórinn að verkefnið væri enn á byrjunarstigi. „Maður fer ekki alveg á fullt svona strax við gerð heimildarmynda,“ segir Róbert. „Ég er að viða að mér efni, hef tekið tvö viðtöl og ætla að tala við menn sem hafa brennandi áhuga á enska boltanum og þá sem hafa tekið virkan þátt í honum,“ segir Róbert en tökuliðið hefur þegar farið í eina ferð út til Englands með íslenska Liverpool-stuðningsmannaklúbbnum og reiknaði fastlega með að fara í fleiri slíkar ferðir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er einn þeirra sem Róbert hefur tekið viðtal við íþróttavöruframleiðandinn Halldór Einarsson, betur þekktur sem Henson, en hann sá meðal annars enska úrvalsdeildarliðinu Aston Villa fyrir búningum. Áhugi Íslendinga á ensku úrvalsdeildinni hefur síst minnkað eftir að Eggert Magnússon og Björgólfur Guðmundsson yfirtóku West Ham og verður því forvitnilegt að sjá hvaða augum Íslendingar sjá ást sína á enskri knattspyrnu. Eggert Magnússon Kaup hans á West Ham hefur orðið til þess að sífellt fleiri fylgjast með gangi mála í ensku úrvalsdeildinni. .
Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Sjá meira