Vandlátir valda ólgu 2. nóvember 2006 12:30 Umsjónarmenn þáttarins: Þórunn Högnadóttir, Nadia Banine og Arnar Gauti. „
Við vissum að það yrðu viðbrögð við þessu en okkur datt ekki í hug að þau yrðu svona sterk,“ segir Þórunn Högnadóttir, einn umsjónarmanna lífstílsþáttarins Innlit/útlit sem sýndur er á Skjá einum. Símalínur stöðvarinnar loguðu í gær þegar heilmargir hringdu lýstu heilmargir megnri óánægju með innslag í þættinum á þriðjudagskvöld. Þar var í máli og myndum sagt frá endurbótum fjölmiðlamannsins Ásgeirs Kolbeinssonar á íbúð við Bárugranda sem hann festi nýverið kaup á. Arnar Gauti, einn umsjónarmanna þáttarins, ræddi við Ásgeir fyrir og eftir breytingar. Báðir hafa þeir vandlátan smekk og er skemmst frá að segja að fyrir breytingar féll íbúðin hvorugum í geð. Kölluðu eldhús- og baðinnréttingarnar fram sérstaklega sterkar tilfinningar hjá tvímenningunum, eins og ítrekuð notkun orðanna „ógeðslegt“ og „viðbjóður“ ber vitni um. Þá kom fram að Ásgeiri þætti „mjög gott“ að fara í bað en gat þó ekki hugsað sér að leggjast í baðkarið sem fylgdi íbúðinni sökum velgju. Að sögn Ásgeirs tók þó steininn úr þegar vinur hans, Jómbi að nafni, sá rimlagardínur sem fylgdu íbúðinni og seldi upp. Þórunn segir að margir hafi hringt í sig og kvartað yfir sterkum lýsingarorðum Ásgeirs og Arnars á innréttingum, sem í augum leikmanns virtust ósköp venjulegar. „Smekkur manna er misjafn og það hefði kannski verið hægt að orða þetta öðruvísi. En svona tala strákarnir bara saman, þetta eru þeirra karakterar,“ segir hún en bætir við að eftir á að hyggja hafi þeir ef til vill gengið of langt. „Við pródúsentinn og klipparinn vorum á báðum áttum fyrir þáttinn og hugsuðum með okkur að kannski væri þetta fullgróft. Við klipptum þetta hins vegar til og ákváðum að senda þetta í loftið. Okkur óraði hins vegar ekki fyrir afleiðingunum.“ Þórunn býst við að að brugðist verði við athugasemdum sem þættinum hafa borist. „Hvernig sem það verður. Það hafa svo margir hringt að við verðum að gera eitthvað.“
Menning Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Tónlist 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Fleiri fréttir Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Sjá meira