Jón Gerald bar ljúgvitni gegn Jóhannesi 11. apríl 2006 12:12
Lögmaður Jóhannesar Jónssonar í Bónus segir Jón Gerald Sullenberger hafa borið ljúgvitni gegn Jóhannesi hjá lögreglu og á þeirri lygi hafi ákæra gegn honum verið byggð í Baugsmálinu. Jóhannes hefur kært Sullenberger til ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann kvartað undan yfirmanni efnahagsbrotadeildar lögreglunnar og ríkislögreglustjóra við umboðsmann Alþingis.Ákæran á hendur Jóhannesi var að mestu byggð á framburði Jóns Geralds sem sagði Jóhannes hafa beðið sig að gefa út ranga reikninga vegna bílakaupa en við vitnaleiðslur í héraðsdómi breytti hann framburði sínum. Að sögn lögmanns Jóhannesar eru rangar sakargiftir sem þessar litnar alvarlegum augum. Hann segir alveg ljóst að ef Jón Gerald hefði ekki borið Jóhannes röngum sökum við yfirheyrslur hjá lögreglu hefði það sennilega leitt til þess að Jóhannes hefði ekki verið ákærður. Refsing fyrir brot af þessu tagi sé allt að tíu ár og metið af löggjafanum sem gríðarlega alvarlegt brot. Hann á því von á að ríkissaksóknari taki málið til rannsóknar.Að sögn Einars Þórs hefur Jóhannes einnig sent umboðsmanni Alþingis kvörtun um að Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hafi brotið jafnræðisreglu þegar ákæra var gefin út á hendur honum. Hann telur að ákæruvaldinu beri að fara eftir þeim reglum að jafnræðis sé gætt og að það liggi fyrir að Jón Gerald hafi ítrekað lýst því yfir hjá lögreglu að hann hafi framið refsivert athæfi en af einhverjum ástæðum hafi hann ekki verið ákærður á meðan Jóhannes, sem alltaf neitaði sök í málinu var ákærður. Í þessu felst brot á jafnræðisreglunni að þeirra mati.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira