Freyja Amble efst á Krumma 27. júní 2006 06:45 Keppnisandinn svífur yfir vötnum Forkeppni í ungmennaflokki fór vel af stað og fóru þar mörg glæsipör á vellinum. Hér eru Rósa Birna Þorvaldsdóttir og grái klárinn hennar Bylur frá Kleifum. MYND/Eiðfaxi "
Þrátt fyrir að skýjað sé í kring, skín sólin beint á keppnisvöllinn eins og geislabaugur," sagði Hulda Geirsdóttir þar sem hún sat í áhorfendabrekkunni á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði í gær. Þá voru þegar mætt norður um þrjú þúsund manns sem er nokkuð meira en búist var við á fyrsta degi. "Þetta hefur farið rosalega vel af stað. Það er mikil ánægja með mótssvæðið, keppendur láta vel af keppnisvöllunum enda fallegir og snyrtilegir," bætir Hulda við. Búist er við að yfir tíu þúsund gestir muni leggja leið sína í Skagafjörðinn í þessari viku og um helgina til að berja augum þá þúsund hesta sem sýndir verða bæði á keppnisvellinum og í kynbótasýningum. "Það er mjög gaman að segja frá því að efsta hryssan í flokki hryssna sjö vetra og eldri kemur úr Sauðárkróksræktuninni. Það er Hvíta-Sunna frá Sauðárkróki og skemmtilegt fyrir heimamenn að byrja mótið svona," segir Hulda glaðlega og klappar duglega fyrir einum af þeim fjölmörgu unglingum sem ljúka keppni. "Keppnin í ungmennaflokki var feikigóð og Freyja Amble er þar langefst á Krumma frá Geldingalæk. Hún bætir þar upp mistökin frá síðasta móti þegar þau fengu ekki einkunn þar sem knapi var með písk. En nú stefnir hún á sigur," segir Hulda, full landsmótsgleði.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun Sjá meira