Vilja útrýma hugmyndinni um brjálaða vísindamanninn 9. janúar 2006 23:00 MYND/Hari
Gera á út af við hugmyndina um brjálaða vísindamanninn og auka áhuga ungs fólks á raungreinanámi með nýju skemmti- og fræðasetri á sviði vísinda og tækni sem fyrirhugað er að setja á fót. Samningur um undirbúningsfélag fyrir verkefnið var undirritaður í dag. Það voru Háskóli Íslands, Orkuveita Reykjavíkur og Kennaraháskóli Íslands sem undirrituðu samninginn en fulltrúar frá þessum þremur aðilum munu starfa í undirbúningsfélaginu. Markmiðið er að gæða áhuga ungs fólks á raungreinum en nokkuð hefur verið kvartað undan lítilli aðsókn í nám í þeim greinum við háskóla landsins. Ari Ólafsson, dósent við raunvísindadeild segir ímyndina af vísindunum bágborna og börn séu ekki gömul þegar þau kynnist hugmyndinnni um vonda vísindamanninn í barnaefni sjónvarpsins. Á þessari ímynd sé hamrað. Þessu vilji menn breyta þannig að börnin finni bæði ánægju og næringu fyrir hugann í viðfangsefnum vísindanna. Áætlað er að undirbúningsfélagið starfi í eitt ár og eru verkefni þess að skipuleggja starfsemi vísindasetursins, gera þjónustusamninga við ríki og sveitarfélög ásamt því að safna fé frá fjárfestum, en setrið verður einhvers konar sjálfseignarfélag. Vísindasetrið hefur fengið vinnuheitið Tilraunahúsið en samsvarandi hús er að finna í flestum stærri erlendis. Ekki hefur verið ákveðið hvar það verður eða hvenær það tekur til starfa. Það mun ráðast af því hversu vel gengur að afla fjár fyrir verkefnið en byrjunarupphæð fyrir það hleypur á nokkur hundruð milljónum króna.
Fréttir Innlent Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira