Ólafur og Dagur Kári sættast 17. desember 2006 13:00 Á heimasíðu Ólafs Jóhannessonar eru hann og Dagur Kári sagðir sættast eftir áralangt stríð sem er reyndar uppspuni frá rótum.
Á heimasíðu kvikmyndafyrirtækisins Poppoli er að finna nokkuð undarlegt viðtal við kvikmyndaleikstjóranna Dag Kára Pétursson og Ólaf Jóhannesson. Við fyrstu sýn mætti ætla að það hefði andað köldu á milli þeirra félaga en þeir hefðu ákveðið að grafa stríðsöxina. „Þetta er þekkt mál. Ég hef alltaf verið á móti stefnu hans í kvikmyndum og aldrei skilið af hverju hann hefur fengið öll verðlaun en við engin,“ útskýrir Ólafur þegar Fréttablaðið innti hann eftir sáttarumleitunum þeirra á milli. „Við höfum unnið mikið saman en rifist eins og hundur og köttur þess á milli,“ heldur Ólafur áfram. Þessi meinti ágreiningur kvikmyndaleikstjóranna kemur eflaust mörgum spánskt fyrir sjónir enda kemur það á daginn við nánari eftirgrennslan að viðtalið er skáldskapur frá upphafi til enda. Fjöldi kvikmynda eru nefndar á nafn sem aldrei hafa verið gerðar og ljóst að vinskapur þeirra á milli hefur aldrei verið meiri. Dagur Kári aðstoðar Ólaf við gerð handritsins að kvikmyndinni Stóra planið sem byggð er á bók Þorvaldar Þorsteinssonar, Við fótskör meistarans, en það eru þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Eggert Þorleifsson sem leika aðalhlutverkin. „Ég réð Dag bara til að hafa stjórn á honum,“ segir Ólafur og hlær að þessu græskulausa gríni félaganna. „Þetta er náttúrlega bara bölvað bull milli tveggja góðra vina,“ bætir Ólafur við.
Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira