Rannsókn á meintu landhelgisbroti færeysks togara 12. júní 2006 13:30 Úr myndasafni MYND/Jón S.
Ríkissaksóknari hefur nú til athugunar rökstuðning Landhelgisgæslunnar fyrir því að halda áfram rannsókn á meintu landhelgisbroti færeysks togara á Íslandsmiðum fyrr á árinu, en togarinn slapp í land í Færeyjum. Samkvæmt samningi Íslands og Færeyja um lögreglusamvinnu var færeysku lögreglunni falið að rannsaka málið þar, en vegna ófullnægjandi gagna þaðan vildi lögreglan hér vísa málinu frá. Þeirri ákvörðun vísaði Gæslan hins vegar til Ríkissaksóknara. Málið hefur fengið aukið vægi núna eftir að færeyskir vísindamenn staðfesta að um og yfir fjögur þúsund tonn af þorski, sem færeysk skip bera að landi, sé þorskur af íslenskum ættum, ef svo má segja, en það er nær þrefalt meira en þeim er heimilt samkvæmt samningi Íslendinga og Færeyinga um gagnkvæmar veiðiheimildir. Eftir því sem fréttastofa NFS kemst næst liggja færeysku skipin við miðlínuna á millli landanna, í von um að íslenski þorskurinn flakki inn í færeysku lögsöguna, sem mun hafa færst í vöxt. Einnig eru dæmi um að þau hafi farið inn i íslensku lögsöguna, fyrir utan það sem þau mega veiða hjá okkur samkvæmt samningi. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði í viðtali við NFS í morgun að andvirði þessa umframafla Færeyinga næmi um 660 milljónum króna á ári og þurfi Íslendingar að skerða kvóta sinn sem þessum umframveiðum nemi.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira