Innlent

37 þúsund tonna aukning fiskaflans

MYND/Vísir

Heildarafli íslenskra fiskiskipa í maí var tæplega 179 þúsund tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það er þrjátíu og sjö þúsund tonna aukning miðað við sama tíma í fyrra. Meiri botnfiskafli og kolmunnaafli þetta árið skýrir aukninguna, að sögn Fiskistofu. Hinsvegar dróst afli norsk-íslensku síldarinnar verulega saman milli ára. Í maí í fyrra var síldaraflinn tæp tólf þúsund tonn en í nýliðnum maí náði síldaraflinn ekki sex þúsund tonnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×