Dræm kjörsókn í Reykjavík í morgun 27. maí 2006 12:08
Dræm kjörsókn hefur verið í Reykjavík í morgun og kosningarnar farið rólega á stað. Fyrir hádegið var kjörsókn tæp sjö prósent. Oddvitar flokkanna mættu á kjörstað fljótlega eftir að dyrnar voru opnaðar klukkan níu í morgun. Hátt í áttatíu og sexþúsund manns eru á kjörskrá í Reykjavík. Hægt er að kjósa á þrettán stöðum og opnuðu kjörstaðir klukkan níu í morgun og verða opnir til klukkan tíu í kvöld. Að sögn Ástráðs Haraldssonar, formanns kjörstjórnar, hefur kosningin farið frekar rólega á stað og allt gengið vel. Fyrir hádegið höfðu 6,78% kosið sem er fremur dræm þátttaka en á sama tíma í sveitarstjórnarkosningunum árið 2002 voru 8,33% kjósenda búnir að kjósa. Á tólfta þúsund manns hafa kosið utankjörfundar hjá Sýslumannsembættinu í Reykjavík. Þetta eru mun fleiri en kusu alls utankjörfundar fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Alls kusu þá um átta þúsund og sex hundruð manns utankjörfundar hjá sýslumanninum í Reykjavík. Í dag geta kjósendur utan af landi greitt þar atkvæði til klukkan sex en þeir þurfa samt sjálfir að koma atkvæði sínu til skila. Oddvitar stóru framboðanna í Reykjavík tóku daginn snemma. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, var mættur á slaginu níu í íþróttamiðstöðina í Austurbergi til þess að greiða atkvæði. Hann var sjálfsögðu ánægður eftir að hafa komið sínu atkvæði í kjörkassann. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinna, var ekki mikið seinna á ferðinni en hálf tíma síðar eða hálf tíu mætti hann í Ráðhús Reykjavíkur til að koma sínu atkvæði til skila. Á sama tíma var Ólafur F. Magnússon, oddviti Frjálslyndaflokksins, að greiða atkvæði í Breiðagerðisskóla. Björn Ingi Hrafnsson, oddiviti Framsóknarflokksins í borginni, fór svo klukkan tíu í Ölduselsskóla þar sem hann greiddi atkvæði ásamt konu sinni. Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri-grænna, var sú eina af oddvitunum sem ekki kláraði að kjósa í morgun en hún ætlar sér að mæta nú um hádegi á kjörstað.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Innlent Fleiri fréttir Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sjá meira