Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisafbrot 6. júní 2006 18:57 Mynd/Ingólfur Arnarson
Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa þvingað stúlku til að hafa við sig munnmök og að hafa reynt að þröngva henni til samræðis. Atvikið átti sér stað í 2. júlí í fyrra á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði en bæði maðurinn og stúlkan voru gestir á hátíðinni og gistu á tjaldsvæðinu þar sem atvikið átti sér stað. Maðurinn og stúlkan hittust á tjaldstæðinu og síðar um nóttina gengu þau saman frá tjaldstæðinu að trjálundi sem er skammt frá. Þar átti atvikið sér stað en maðurinn segir að hann hafi haft munnmök við stúlkuna og með hennar samþykki. Stúlkan hefur fullyrt að maðurinn hafi þvingað hana til munnmaka og gert tilraun til að setja getnaðarlim sinn í leggöng hennar. Að mati dómsins var stúlkan staðföst og trúverðug í frásögn sinni af atburðum. Vitni sem einnig voru á tjaldsvæðinu umrædda nótt, báru fyrir dómi að stúlkan hefði komið hágrátandi og í miklu uppnámi aftur á tjaldsvæðið og greint frá því að sér hafi verið nauðgað. Sálfræðingur bar einnig vitni fyrir dómi og greindi frá því að stúlkan hafi orðið fyrir áfalli sem valdið hafi henni skelfingu og varnarleysi. Hún hafi verið mjög kvíðin og hrædd, óörugg í aðstæðum þar sem hún hafi áður fundið sig örugga, verið viðkvæm, grátgjörn og viljað forðast að hitta fólk. Aldur stúlkunnar kemur ekki fram Í dómnum. Maðurinn var eins og áður segir dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hann var auk þess dæmdur til að greiða stúlkunni eina milljón króna í skaðabætur, og um 800 þúsund krónur í málskostnað.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira