Spasskí og Fischer hittast líklega um helgina 10. febrúar 2006 13:45 Spasský og Fischer við skákborðið í einvígi þeirra í Júgóslavíu árið 1992. MYND/Reuters
Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, teflir einvígi við Friðrik Ólafsson, fyrsta íslenska stórmeistarann, hér á landi á morgun. Líkur eru á að Spasskí og Bobby Fischer muni hittast, en ekki hefur verið ákveðið hvort þeir mætist við skákborðið. Tilkynnt var fyrir nokkru að Spasskí væri væntanlegur hingað til lands vegna málþings sem haldið verður um Friðrik Ólafsson og feril hans á morgun en Spasskí mun þar flytja erindi. Í gær var svo sagt frá því að þeir félagar myndu tefla tveggja skáka einvígi við sama tækifæri. Friðrik varð fyrstur Íslendinga stórmeistari í skák og vann marga af helstu stórmennum skáklistarinnar á sínum tíma, þar á meðal Mikhael Tal og Bobbý nokkurn Fischer. Spasskí var honum hins vegar oft óþægur ljár í þúfu og að sögn Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, eins skipuleggjanda einvígisins, hefur heimsmeistarinn fyrrverandi betur í heildina þegar skoðaðar eru allar skákir þeirra tveggja í gegnum tíðina. Eins og kunnugt er öttu Spasskí og Fischer kappi í því sem kallað hefur verið skákeinvígi aldarinnar hér á landi árið 1972. Aðspurð hvort ekki sé á dagskránni að þeir hittist og taki jafnvel eina stutta segir Guðfríður Lilja að þeir muni líklega hittast, en ekki sé víst að þeir mætist jafnframt við skákborðið. Það yrði þá utan kastljóss fjölmiðlanna. Eivígi Friðriks og Spasskí fer fram í aðalstöðvum Landsbanka Íslands í Austurstræti strax á eftir málþinginu á morgun sem hefst klukkan hálf tvö, og eru allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Sjá meira