Fyrsta sérhæfða geðdeildin fyrir aldraða 4. apríl 2006 16:51 MYND/Gunnar
Geðdeild fyrir aldraða verður sett á laggirnar á Landakotsspítala, sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þetta er meðal aðgerða sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag sem ætlaðar eru til að bæta geðheilbrigðisþjónustu við aldraða hér á landi. Þáverandi heilbrigðisráðherra skipaði í desember síðastliðnum faghóp til að koma með ábendingar um hvernig megi bæta geðheilbrigðisþjónustu við aldraða hér á landi. Hópurinn hefur nú skilað umbeðnum ábendingum og kynnti nýr heilbrigðisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, þær á blaðamannafundi í heilbrigðisráðuneytinu í dag. Þar ber fyrst að nefna sérhæfða hjúkrunardeild fyrir aldraða sem glíma við geðkvilla sem setja á á laggirnar á hjúkrunarheimilinu í Sogamýri sem tekið verður í notkun á næsta ári. Í öðru lagi hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að undirbúa rekstur sérstakrar geðdeildar fyrir aldraða á Landakoti, en auk þess leggur ráðherra áherslu á að komið verði á fót ráðgjafarþjónustu á landsvísu fyrir heilsugæslu, spítaladeildir og hjúkrunarheimili. Markmiðið yrði að tryggja öldruðum um land allt sérhæfða geðheilbrigðisþjónustu eftir þörfum. Þá var ein ábendinga hópsins að efla þurfi forvarnir og auka þátt heilsugæslunnar í geðheilbrigðisþjónustu við aldraða, og það þurfi að byggja upp sérhæfða þjónustu fyrir aldrað fólk með geðsjúkdóma. Heilbrigðisráðherra segir áætlaðan kostnað ekki liggja fyrir, en það muni kosta talsverða fjármuni að koma upp hjúkrunarheimilinu í Sogamýri. Ráðherrann gerir hins vegar ráð fyrir að geðdeildin á Landakoti verði komið upp innan þess ramma sem þar er fyrir því þeir sem fari í sérhæfðu úrræðin í Sogamýri komi af spítalanum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira