Hundruð milljóna í endurgreiðslu 17. apríl 2006 19:05
Dagsbrún, sem hyggst gefa út fríblað í Danmörku, fær hundruð milljóna króna í endurgreiðslu frá danska ríkinu þar sem notast verður við dönsku póstþjónustuna við dreifingu blaðsins. Ritstjórar þeirra dagblaða, sem nú eru á markaði, eru ekki uppnumdir, en þó sannfærðir um að þeir muni standa af sér íslensku samkeppnina. Það örlar á geðvonsku í skrifum blaðamanna danska viðskiptablaðsins Börsen, sem gera áætlunum Dagsbrúnar, móðurfélags Fréttablaðsins og NFS, um danskt fríblað skil. Þei ræða sérstaklega um dreifingu blaðsins, sem danski pósturinn mun að hluta til sjá um. Samkvæmt dönskum lögum fá þeir sem gefa út dagblöð endurgreiðslu á póstdreifingu. Fyrirsagnir Börsen er á þá leið að með fríblaðinu muni Íslendingar sópa milljónum úr danska ríkiskassanum. Sagt er að ef Dagsbrún deifi 500 þúsund blöðum inn á dönsk heimili, og pósturinn sjái um helming dreifingar, þýði það að danska ríkið greiði fyrirtækinu 60 milljónir danskra króna til baka, eða um 730 milljónir íslenskra króna. Sérstaklega er tekið fram að það sé erfitt fyrir samkeppnisaðila Dagsbrúnar að fetta fingur út í greiðslurnar, þar sem önnur dagblöð eins og Berglinske Tidende hafi fengið ríkulega endurgreiðslu af sömu ástæðu. Stefnt er að því að breyta reglunum á næstu ári, þannig að endurgreiðsla vegna hvers blaðs nemi ekki hærri upphæð en um 180 milljónum íslenskra króna. Hins vegar er varað við því að Dagsbrún geti gefið út blöð fyrir hvert sveitarfélag með ólíkum heitum, eða snúið á kerfið og fái því hærri greiðslur. Áætlanir Dagsbrúnar, um að ryðja sér rúms á dönskum dagblaðamarkaði, eru einnig bornar undir ritstjóra Politiken og Berglinske Tidende. Niels Lunde, aðalritsjóri Berlingske , er vantrúaður á að verkefnið, bæði hvað varðar dreifingu og það að um 100 blaðamenn verði ráðnir til að skrifa í fríblað. Hann segir þó ljóst að ritstjórn Berglinske, sem selt er í áskrift, þurfi að aðlaga sig breytingum á markaði. Gæðin þurfi að auka svo Danir hafi enn áhuga á að greiða sérstaklega fyrir blöð í áskrift. Töger Seidenfaden hjá Politiken, er síður en svo áhyggjufullur og segist fagna samkeppninni. Danir hafi nú þegar úr mörgu að velja, nýtt blað Dagsbrúnar hafi lítið að segja enda hafi Politiken sérstöðu. Helst á hann von á að auglýsingasala gæti minnkað. Fyrir á markaði eru tvö fríblöð í Danmörku sem koma út daglega, Urban og Metro Express. Þau sækir fólk við biðskýli eða fær þau afhent hjá blaðburðarfólki sem er við fjölfarnar götur.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira