Hvalveiðisinnar í meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðsins 17. apríl 2006 12:30
Hvalveiðisinnar eru komnir í meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðsins að mati breska blaðsins Independent. Þessi breytta staða er árangur margra ára starfs Japana en Íslendingar og Norðmenn hafa einnig komið þar við sögu. Ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins fer fram í júní í eyríkinu St. Kitts og Nevis og er útlit fyrir að ríki sem hlynnt eru hvalveiðum verði þar í meirihluta í fyrsta sinn í rúma tvo áratugi. Greinarhöfundar eru ekkert að skafa utan af hlutunum þegar þeir lýsa þeirri nýju stöðu sem upp er komin innan ráðsins heldur tala þeir um að valdarán hafi hreinlega átt sér þar stað. Japanar, með fulltingi Íslendinga og Norðmanna, hafi með lúmskum hætti undanfarin ár lokkað inn í ráðið ný ríki sem flest eru frá Afríku og Karabíska hafinu. Þau taki við margra milljarða króna efnahagsaðstoð fegins hendi gegn því að styðja hvalveiðar. Árið 2000 voru aðildarríki Alþjóðahvalveiðiráðsins fjörutíu en nú eru þau orðin 66. Þessi fjölgun á að duga hvalveiðisinnum til að hafa einfaldan meirihluta í ráðinu. Þótt 75 prósent atkvæða þurfi til að ógilda ákvörðun ráðsins um bann við hvalveiðum í atvinnuskyni á að vera hægt að ná fram breytingum á ýmsum ákvörðunum þess, til dæmis að samþykkja viðskipti með hvalkjöt og koma á leynilegum atkvæðagreiðslum á fundum ráðsins, sem blaðið telur sérlega mikilvægt. Niðurstaða greinarhöfunda er því sú að sá árangur sem umhverfisverndarsamtök náðu á níunda áratugnum þegar hvalveiðar voru bannaðar sé nú í verulegri hættu.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Sjá meira