Þurfti að kasta upp í beinni útsendingu 3. nóvember 2006 13:30 Heimir neyddist til að halda stillingu sinni eftir að Guðni rauk skyndilega út í beinni útsendingu til að kasta upp. "
Það sveif svona líka rosalega á mig í beinni og ég varð að bregða mér frá til að kasta upp," segir Guðni Bergsson. Áhorfendur Sýnar hrukku margir hverjir í kút á miðvikudagskvöldið þegar knattspyrnukappinn fyrrverandi hvarf skyndilega úr myndveri sjónvarpsstöðvarinnar. Eftir sátu þeir Heimir Karlsson, Arnar Gunnlaugsson og knattspyrnudómarinn geðþekki Gylfi Orrason sem síðar í þættinum settist í sæti Guðna. Undir myndbrotum úr leik AC Milan og Anderlecht í meistardeild Evrópu mátti heyra mikin skruðning og svo rak einn þáttastjórnandanna upp undrunaróp og þegar myndavélunum var beint aftur inn í myndverið var miðvörðurinn gamli horfinn á braut. Margir héldu að þarna hefði eitthvað alvarlegt komið fyrir en þegar Fréttablaðið hafði samband við Guðna var hann allur að braggast, sagði að ælupest hefði verið að ganga heimafyrir og hún hefði þarna komið í bakið á honum. "Ljósin og hitinn voru nú ekki beint til bæta úr skák," sagði Guðni. "Ég náði þó sem betur fer fram á klósett," bætir hann við og viðurkenndi að þarna hefði gamli sprengikrafturinn úr boltanum komið að góðum notum, "Ég er að ná mér, er ekkert slæmur í dag," útskýrir Guðni en augljóst var að félögum hans í þættinum stóð ekki á sama. "Það var mjög óþægilegt að finna fyrir þessu í miðjum þætti en mér fannst það aðdáandavert að sjá hvernig allir brugðust við, náðu að leysa hlutina eins og þetta væri hluti af handritinu," útskýrir Guðni. Heimir Karlsson viðurkennir að honum hafi ekki staðið á sama þegar Guðni rauk svona skyndilega út undir myndbrotunum en ákvað að halda stillingu sinni enda vissi hann að fjölskylda og ættingjar Guðna gátu verið að horfa á. "Við vildum ekki vera að búa til einhverja hræðslu hjá fólkinu heimafyrir," segir Heimir sem gat ekkert hugað að félaga sínum en Arnar brá sér frá og sá að þetta var ekki eins alvarlegt og þetta leit út fyrir að vera. "Ég hafði hugann við Guðna á meðan við fórum yfir leikina en til allra hamingju fór þetta allt vel að lokum."
Menning Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Tónlist Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Lífið Fleiri fréttir „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Sjá meira