Áhorf á NFS jókst í maí 28. júní 2006 06:15
Fréttastöðin NFS sækir í sig veðrið samkvæmt könnun Gallup á sjónvarpsáhorfi landsmanna í maí. Tæp 34 prósent aðspurðra horfðu eitthvað á NFS á tímabilinu, en það er um tíu prósentustiga aukning frá því í mars. Á sama tíma minnkaði áhorf á Stöð 2 um sjö prósentustig, en Skjár Einn stendur nokkurn veginn í stað. Ríkissjónvarpið nær enn til flestra landsmanna en tæp 92 prósent horfðu eitthvað á stöðina í vikunni sem könnuð var, sem er svipað og hefur verið seinasta árið. Áhorf á Sirkus fer lítillega lækkandi frá því síðast. Meðaláhorf á virkum dögum lækkar eða stendur í stað hjá öllum stöðvum nema NFS, og er það líklegast sumarveðrið sem veldur því að fólk horfir almennt minna á sjónvarp. Karlmenn horfa meira á NFS og Sjónvarpið en konurnar eru í meirihluta hvað varðar Stöð 2, Skjá Einn og Sirkus. Í einstökum dagskrárliðum eru það fréttir Ríkissjónvarpsins sem hafa vinninginn með rúmlega 38 prósenta áhorf en Kastljós fylgir þar á eftir með um 28 prósent. Í erlendum þáttum eru Aðþrengdar eiginkonur vinsælastar, en 28 prósent þátttakenda horfðu á ævintýri þeirra í hverri viku. Á sameiginlegan fréttatíma Stöðvar 2 og NFS horfðu 21 prósent aðspurðra. Vinsælasti innlendi þátturinn er Út og suður sem sýndur er í Ríkissjónvarpinu, en hann mældist með um 27 prósenta áhorf. Áhorf á sjónvarpsstöðvar eftir aldurshópum er nokkuð mismunandi eftir því hvaða stöð er um að ræða. Ríkissjónvarpið er áberandi vinsælast hjá áhorfendum 50 ára og eldri en dæmið snýst við þegar áhorf á Sirkus og Skjá Einn er mælt. Könnunin var gerð vikuna 28. maí til 3. júní og náði til 1.500 Íslendinga á aldrinum 12 - 80 ára, völdum af handahófi úr þjóðskrá. 43 prósent aðspurðra tóku þátt í könnuninni.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira