Engin lausn að leggja niður stofnanir 9. febrúar 2006 16:35 Árið eftir að Landspítalinn og Borgarspítalinn voru sameinaðir var rekstrarkostnaður hins sameinaða spítala, Landspítala - háskólasjúkrahúss, rúmlega milljarði hærri en samanlagður kostnaður spítalanna árið fyrir sameininguna. MYND/GVA
Það er engin lausn að leggja leggja niður stofnanir því verkefni þeirra standa þá eftir. Þetta segir formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana. Viðskiptaráð sagðist í gær frekar vilja leggja niður stofnanir en sameina þær. Dæmi eru um að útgjöld stofnana hafi hækkað um hundruð milljóna eftir sameiningu. Í skýrslu Viðskiptaráðs sem gefin var út í gær í tengslum við Viðskiptaþing kemur fram að útgjöld ríkisins vegna sameininga og nafnabreytinga stofnanna hafi kostað íslenska skattgreiðendur um 1,8 milljarða króna frá árinu 1999. Engin sameining hefur falið í sér sparnað heldur hafa þær allar þýtt hærri útgjöld fyrir ríkið. Skúli Eggert Þórðarson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana, skýrir þetta m.a. með því að þegar gerðar séu breytingar á stofnunum sé það ogt og tíðum háð ýmsum umhverfisbreytingum, t.a.m. sé stundum verið að efla stofnanir þegar þær eru sameinaðar. Sem dæmi um útgjaldaaukningu við sameiningu stofnana má nefna Lyfjastofnun. Hún varð til árið 2000 við sameiningu Lyfjaeftirlitsins og lyfjanefndar, og í greinargerð með frumvarpinu sagði að sameiningin væri til hagræðis. Samkvæmt skýrslu Viðskiptaráðs voru útgjöld síðarnefndu stofnananna 68 milljónir króna árið 2000, en útgjöld Lyfjastofnunar árið eftir 60 prósentum hærri. Aðspurður um þetta vísar Skúli Eggert á forstjóra Lyfjastofnunar. Annað dæmi sem Viðskiptaráð tiltekur er þegar Löggildingarstofa og Samkeppnisstofnun voru lagðar niður í fyrra og við verkefnum þeirra tóku Neytendastofa, talsmaður neytenda og Samkeppniseftirlitið. Gert er ráð fyrir að kostnaður við rekstur hinna nýju stofnana á þessu ári verði sextán prósentum hærri en rekstrarkostnaður Löggildingarstofu og Samkeppnisstofnunar var á síðasta ári. Skúli Eggert segir ekkert óeðlilegt við þetta því þegar breytingin átti sér stað var jafnframt verið að setja meiri pening í Samkeppnniseftirlitið og svokallaða neytendavernd. Þá má nefna að árið eftir að Landspítalinn og Borgarspítalinn voru sameinaðir var rekstrarkostnaður hins sameinaða spítala, Landspítala - háskólasjúkrahúss, rúmlega milljarði hærri en samanlagður kostnaður spítalanna árið fyrir sameininguna. Viðskiptaráð segist í skýrslunni frekar vilja sjá að stofnanir séu lagðar niður en að þær séu sameinaðar. Skúli svarar þessu á þann veg að stofnanir séu til vegna verkefna sem þeim séu falin lögum samkvæmt. Ef þær eru lagðar niður þurfi að ákveða hvað verði um verkefnin.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira