Málflutningur í Baugsmálinu hafinn 23. febrúar 2006 12:11 Verjendur í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. MYND/Gunnar V. Andrésson
Töf varð á réttarhaldi í Baugsmálinu við upphaf þinghalds í Héraðsdómi í morgun þegar settur saksóknari lagði fram ný gögn varðandi bílainnflutning Baugsfjölskyldunnar. Reiknað er með að málið verði dómtekið síðar í dag. Gögnin sem Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í málinu, lagði fram við upphaf þinghalds tengjast innflutningi á fjórum bílum frá Bandaríkjunum sem deilt er um í fjórum ákæruliðum af átta. Þeirra var aflað frá bifreiðaskráningu í Kanada, sem er upprunaland einnar bifreiðarinnar, og sýna fram á að hún hafi verið afskráðir þar og taka af vafa um vélarnúmer bifreiðarinnar. Verjendur mótmæltu framlagningu gagnanna harðlega og var því gert hlé á aðalmeðferð í tuttugu mínútur svo verjendur gætu kynnt sér gögnin. Mótmælin voru síðan dregin til baka en saksóknari hafði fullyrt að ekki yrði byggt á gögnunum. Saksóknari hóf síðan málflutning sinn og fór yfir ákæruliðina átta sem eftir standa í málinu. Þeir varða brot á lögum um ársreikninga og almennum hegningarlögum vegna lánveitinga Baugs til tengdra félaga og aðila og tollalagabrot vegna innflutnings notaðra bíla. Sigurður Tómas gat þess sérstaklega að verið væri að fara yfir þá 32 ákæruliði sem vísað var frá dómi fyrir áramót og kannað hvort aftur yrði ákært í þeim. Hann tók einnig sérstaklega fram að sjálfstæði lögregla og ákæruvalds hefði verið virt fullkomlega á meðan rannsókn fór fram og ákært var í málinu. Hann sagði rannsóknina hafa tekið nokkurn tíma hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra en líkfundarmálið svonefnda hefði meðal annars tafið fyrir henni. Málflutningur verjenda í málinu hefst eftir hádegi en áætlað er að honum ljúki síðdegis í dag og verður málið þá dómtekið. Búast má við dómi í málinu innan þriggja vikna.
Fréttir Innlent Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira