Framsóknarmenn vilja flugvöllinn á Löngusker 9. apríl 2006 19:15
Framsóknarmenn í Reykjavík boða þjóðarsátt í flugvallarmálum með því flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni og út á Löngusker. Flokkurinn stefnir að því að ná tveimur borgarfulltrúm þrátt fyrir að gengi flokksins hafi verið afar slakt í skoðanakönnum.Framsóknarflokkurinn í Reykjavík kynnti í dag stefnuskrá sína fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Flokkurinn vill meðal annars að Sundabraut verði lögð með botngöngum á ytri leið og þá vilja þeir úthluta 1200 nýjum lóðum í Úlfarsárdal fyrir árslok 2007. Auk þess boða þeir þjóðarsátt um Reykjavíkurflugvöll og vilja flytja hann út á Löngusker.Björn Ingi Hrafnsson, oddviti flokksins í borginni, segir að nauðsynlegt sé að hafa innanlandsflug áfram í Reykjavík. Um þúsund störf séu í húfi og frá öryggissjónarmiðum sé mjög brýnt að hafa flugvöllinn í Reykjavík. Þá hafi þeir sem standi fyrir innanlandsflugi bent á að það gæti lagst af ef flugvöllurinn fari úr borginni.Björn Ingi segir tíma athafnastjórnmála kominn í stað samræðustjórnmálanna. Rifist hafi verið um flugvöllinn í alltof langan tíma og nú sé tími til kominn að taka það deilumál frá og koma með lausn. Sama sé um Sundabraut að segja.Framsóknarmenn stefna á tvo borgarfulltrúa þrátt fyrir að skoðanakannanir í vetur hafi sýnt að þeir muni ekki koma inn manni. Björn Ingi segir að fylgi í skoðanakönnunum nú sé ákaflega líkt því sem það var í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Þá hafi því verið haldið fram að Halldór Ásgrímsson kæmist ekki inn á þing en flokkurinn hafi fengið þrjá þingmenn sem sé það mesta sem hann hafi fengið í Reykjavík. Framsóknarmenn séu bjartsýnir og telji að það skipti máli að flokkurinn sé með sína rödd í borgarstjórn. Framsóknarflokkurinn sé starfandi í meirihluta í flestum af stærstu sveitarfélögum landsins og hann telji það enga tilviljun.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira