Fjársvelti Hafró veldur ónógum rannsóknum á loðnunni 5. júní 2006 18:44
Veita þarf meira fjármagni til Hafrannsóknastofnunar til þess að betur megi standa að rannsóknum á loðnustofninum. Bágt ástand þorskstofnsins er ekki eingöngu tilkomið vegna ofveiði á þorski, heldur er ein ástæðan ofveiði á loðnunni. Þetta segja þingmenn stjórnarandstöðu sem sitja í sjávarútvegsnefnd.Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingar, segir Hafrannsóknastofnun ekki hafa gert nægjanlega ítarlega úttekt á loðnustofninum eða notkun togveiðarfæra á lífríki sjávar. Þetta sé til komið vegna fjársveltis Hafró sem ekki fái nægt fjármagn til að rannsaka hafsvæðið í kringum Ísland eins og vera skyldi.Hann bendir einnig á að þorskstofninn líði fyrir það að undanfarin ár hafi of mikið verið sótt í stærri og eldri þorska, þar sem þeir gefi meira af sér í saltfiskvinnslu. Stærri hrygnur gefi hins vegar af sér mun meira af hrognum, auk þess sem gæði hrogna þeirra séu mun meiri og úr þeim komi sterkari seiði. Nú þurfi að vernda þessar ættmæður með strangari reglum um veiðibann á hrygningartíma.Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins og fiskifræðingur, segir aðaláhyggjuefnið vera hversu þorskurinn og ýsan eru horuð. Vistkerfið sé ekki í jafnvægi út af miklum veiðum á loðnunni, sem sé grunnþáttur í fæðu margra annarra fisktegunda. Hann segir að hætta verði loðnuveiðum til bræðslu og einbeita sér að loðnuveiðum til manneldis, sem gefi mun meira í aðra hönd.Þá þurfi einnig að grisja bæði ýsu- og þorskstofninn. Vandamálið sé að það séu of margir fiskar um of lítið fæði og því þurfi bæði að fækka fiskunum og auka ætið.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira