Stjórnin ætti að segja af sér 2. júlí 2006 08:30 „
Að mínu viti ætti stjórn spítalans að segja af sér eða ráðherra að segja stjórninni upp enda hafa tveir dómar nú fallið um ólögmæti aðgerða þeirra gegn læknum spítalans," segir Tómas Zoega, fyrrverandi yfirlæknir á geðsviði Landspítala - háskólasjúkrahúss. Annar dómurinn gegn spítalanum í einum og sama mánuðinum féll í vikunni þegar Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að áminning á hendur Stefáni Matthíassyni, æðaskurðlækni, hefði verið ólögmæt. Dómi Héraðsdóms í gær svipar til dóms Hæstaréttar Íslands, fyrr í þessum mánuði, í máli Tómasar Zoega gegn spítalanum þar sem rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að sú ákvörðun stjórnar spítalans að svipta Tómas yfirlæknisstöðu á geðdeild þar sem hann lagði ekki niður einkastofu sína utan spítalans var dæmd ólögmæt. Stefán Matthíasson rekur einnig eigin stofu og hafði með samningi við spítalann samþykkt að loka henni að uppfylltum skilyrðum um að öll nauðsynleg aðstaða væri fyrir hendi á spítalanum. Þráaðist Stefán við að loka, þar sem fullnægjandi aðstaða var aldrei sett upp á spítalanum að hans mati, og tekur dómurinn undir það sjónarmið. „Ég er afar ánægður með þessi málalok enda dómurinn afar skýr mér í hag og er mikill áfellisdómur yfir stjórn og starfsháttum spítalans." Stefán ætlar að taka sér tíma með lögfræðingi sínum næstu daga og vikur til að ákveða framhaldið. „Ég tel eðlilegt að fara fram á miskabætur í kjölfarið en ég tek ákvörðun að höfðu samráði við lögfræðing minn næstu misserin." Jóhannes Gunnarsson, lækningaforstjóri LSH, segir að farið verði yfir niðurstöðu Héraðsdóms og lærdómur af honum dreginn en fellst ekki á að um áfellisdóm sé að ræða yfir stjórn og yfirmönnum spítalans. „Þessir tveir dómar fjalla um gjörólíka hluti og mér finnst fullhart til orða tekið að tala um niðurstöðuna sem áfellisdóm." Má spítalinn búast við milljóna króna skaðabótamálum verði raunin sú að þeir Tómas og Stefán höfði mál en lögmaður Tómasar hefur látið hafa eftir sér að skaðabótakrafa geti numið allt að hundrað milljónum króna sem séu ætluð laun Tómasar til sjötugs auk miskabóta.
Innlent Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira