Mótmæli gegn frístundabyggð Orkuveitunnar við Úlfljótsvatn 26. maí 2006 17:00 Úlfljótsvatn MYND/Gunnar V. Andrésson
Hópur sem lætur sér framtíð og náttúru Úlfljótsvatns varða afhenti í dag borgarstjóra mótmæli gegn fyrirhuguðum framkvæmdum Orkuveitunnar við Úlfljótsvatn. Orkuveita Reykjavíkur hyggst hluta land ofan Úlfljótsvatns niður í 6-700 lóðir og selja undir heilsárshús. Hópurinn telur þessar framkvæmdir þrengja um of að starfsemi á svæðinu og ógna lífríkinu. Auk þess sé jörðin Úlfljótsvatn eign almennings og Orkuveitunni hafi aðeins verið falið að gæta hennar. Að sögn Bergs Jónssonar, forsvarsmanns hópsins, hefur svæðið í kringum Úlfljótsvatn fengið alþjóðlegar tilnefningar sökum hversu fagurt það er og sérstætt. Úlfljótsvatnssvæðið eigi að nýta sem útivistarsvæði fyrir almenning, ekki bara þá sem hafa efni á lóðunum. Hópurinn myndaðist þegar áhugasamir fóru að kynna sér framkvæmdirnar og áhrif þeirra á lífríki vatnsins og umhverfi þess. Komið var á fót bloggsíðu þar sem hægt var að taka þátt í skoðanakönnun og skrifa í gestabók. Bergur afhenti í dag Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra skoðanakönnunina og gestabókina ásamt rökstuðningi fyrir mótmælunum. Þegar borgarstjóri tók við mótmælunum sagði hún framkvæmdirnar vera mjög umfangsmiklar og jafnvel um of. Hin fyrirhugaða byggð væri mjög þétt og jafnvel kæmi til greina að minnka stærð framkvæmdinnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira