Innlent

Kveikt í þrettándabrennum í kvöld

Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í kvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs.

 Seltirningar kveiktu í brennu á Valhúsahæð og lögðu fjölmargir leið sína þangað þrátt fyrir nokkurn kulda. Safnast var saman við Mýrarhúsaskóla og þaðan gengið fylktu liði undir lúðrablæstri upp á hæðina. Við brennuna mátti sjá álfakóng og -drottningu sem leiddu söng og það virtist skipta viðstadda litlu máli þótt hinn eiginlegi þrettándi hefði verið á föstudag.

Auk brennunnar á Seltjarnarnesi logaði glatt í bálkesti á bökkunum við Gestshús á Álftanesi og við Reynisvatn. Þá voru flugeldasýningar við Gufunes, Fagralund í Kópavogi og við brennuna við Reynisvatn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×