Þokast í samkomulagsátt 15. júní 2006 12:45 Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. MYND/Valgarður Gíslason
Ýmsir þættir þokast í samkomulagsátt hjá aðilum vinnumarkaðarins og talsmenn þar telja að samkomulag geti legið fyrir eftir viku, ef stjónrvöld koma með raunhæft innlegg til samkomulags. Nú þegar liggur fyrir að ríkisvaldið er tilbúið til að uppfæra vaxtabótakerfið, sem er að gufa upp, og auka barnabætur. Það hefur hins vegar hafnað hugmyndum ASÍ um nýtt skattþrep fyrir hina lægst launuðu og Samtök atvinnulífsins taka heldur ekki undir þá hugmynd ASÍ. Þau vilja hins vegar lagfæringar á persónuafslætti þannig að skattleysismörk verði hækkuð, en viðbrögð ríkisvaldsins við því liggja ekki fyrir. Ekki heldur viðbrögð þess við kröfu verkalýðshreyfingarinnar um að lög um lífeyriskjör æðstu embættismanna, ráðherra og þingmanna frá því í árslok árið 2003 verði endurskoðuð. Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins ræddu í gær við fulltrúa Samiðnar og Starfsgreinasambandsins og kynntu hugmyndir um 12 þúsund króna launahækkun á mánuði og launaflokkabreytingar, sem félögin telja skoðunar virði og verður boðað til formannafundar eftir helgi. Samtök atvinnulífsins leggja líka mikla áherslu á að opinberar eftirlitsstofnanir verði virkar þegar harðna tekur á dalnum, meðal annars til að koma í veg fyrir svarta atvinnustarfssemi, sem myndi bæði bitna á aðildarfélögum samtakanna og félögum verkalýðshreyfingarinnar. Samningamenn, sem NFS ræddi við í morgun, telja ekki útilokað að samkomulag geti legið fyrir eftir viku, en það velti þó á útspili ríkisvaldsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fleiri fréttir Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Sjá meira