Vill verða ástfangin aftur 14. desember 2006 18:00 Sienna Miller í jólaboði sem var haldið í Bretlanda á dögunum. Sienna trúlofaðist Jude Law einmitt á aðfangadag. MYND/Getty
Leikkonan Sienna Miller hefur loksins tjáð sig opinberlega eftir skilnaðinn við Jude Law í síðasta mánuði. Hún segist vera tilbúin til að verða ástfangin á nýjan leik. Sienna virðist hafa allt sem til þarf. Hún hefur hæfileikana, útlitið og rétta fatastílinn en eitt hefur þó vantað í líf hennar; vel heppnað ástarsamband.Trúlofun á aðfangadagþegar allt lék í lyndi Jude Law hélt framhjá Siennu með barnfóstru sinni. Á sama tíma var Sienna með Daniel Craig.Hlutirnir litu vel út fyrir hana fyrir röskum tveimur árum þegar hún trúlofaðist hjartaknúsaranum Jude Law á aðfangadag. Myrkrið færðist þó fljótt yfir því þann 18. júlí, rúmi hálfu ári eftir trúlofunina, baðst Jude opinberlega afsökunar á því að hafa haldið framhjá Siennu með barnfóstru sinni, Daisy Wright.Hafði hún verið ráðin til að passa börnin hans tvö sem hann átti með sjónvarpskonunni Sadie Frost. Ekki nóg með það, heldur í október sama ár birtu bresk slúðurblöð fregnir af því að Sienna hefði haldið framhjá Jude á sama tíma með sjálfum James Bond, Daniel Craig, sem var einn af vinum Jude á þessum tíma. Höfðu Sienna og Craig leikið saman í myndinni Layer Cake tveimur árum áður þar sem ástarneistar byrjuðu að kvikna.Búið spilmeð craig Sienna Miller og Daniel Craig í kvikmyndinni Layer Cake. Þau áttu í ástarsambandi á meðan Sienna var enn með Jude.Þrátt fyrir að hafa reynt að bjarga sambandinu hættu Sienna og Jude saman en fyrr á þessu ári tóku þau óvænt upp þráðinn aftur. Í síðasta mánuði gerðu þau sér loks grein fyrir því að þau yrðu að hætta saman fyrir fullt og allt því þetta gengi ekki lengur. Vinátta, hlátur og traust„Ég elska manneskjur sem láta mig hlæja og ég hef lært að vinátta, hlátur og traust er það mikilvægasta í hverju sambandi,“ sagði Sienna í viðtali við The Daily Mirror. „Þau eiga vera grunnurinn að öllu öðru og ég hlakka til að vera í þannig sambandi. Ég er 24 ára og er enn að læra. Ég vildi óska að ég væri sérfræðingur í ástarmálum en ég er það bara ekki.“ Þrátt fyrir sársaukann sem fylgdi skilnaðinum við Jude segist Sienna vera orðin þreytt á því að vera einhleyp og er tilbúin til að verða ástfangin á nýjan leik. „Ég hef alltaf verið þannig stelpa sem vill vera í samböndum. Ég veit ekki af hverju.“ Craig í uppáhaldiHún er ekki búin að gleyma Daniel Craig og virðist hafa miklar mætur á honum. „Ég væri alveg til í að vinna meira með honum. Hann er ótrúlega hrjúfur og harður af sér og hann er líka hæfileikaríkur og hugrakkur,“ segir Sienna sem er greinilega tilbúin til að endurnýja kynni sína af njósnara hennar hátignar, 007.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira