Lífið

Richie handtekin

Nicole Richie var handtekin eftir að hafa keyrt ölvuð um götur Burbank. Hún má eiga von á hárri sekt og jafnvel ökuleyfissviptingu.
Nicole Richie var handtekin eftir að hafa keyrt ölvuð um götur Burbank. Hún má eiga von á hárri sekt og jafnvel ökuleyfissviptingu.

Lífið er ekki eins auðvelt hjá Nicole Richie og það lítur út fyrir að vera því sjónvarpstjarnan úr þáttunum Simple Life var handtekin af lögreglunni í Burbank á mánudaginn, grunuð um ölvunarakstur.

Lögreglumenn tóku eftir því að aksturslag bifreiðar sem Richie ók var undarlegt og gerði Richie sig meðal annars seka um að aka á móti umferðinni. Lögreglan stöðvaði bíl Richie sem var handtekin og hún færð niður á lögreglustöð þar sem blóðprufa var tekin en niðurstaðna úr henni er að vænta á næstu dögum.

Richie hefur látið lítið fyrir sér fara að undanförnu eftir að hafa sæst við sína „bestu“ vinkonu, Paris Hilton. Hún skráði sig í meðferð vegna lítillar líkamsþyngdar og rak meðal annars stílista sinn sem hafði ráðlagt henni að grenna sig fram úr hófi. Richie er fósturdóttir söngvarans Lionels Richie.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.