Næst besti GTA leikurinn 14. desember 2006 14:00 GTA Vice City Stories er tvímælalaust næst besti GTA leikurinn á eftir San Andreas. Heillandi og skemmtilegur söguþráður og nú er hægt að slást sem aldrei fyrr. Stjörnur: 4
Það gleyma því margir hvað Grand Theft Auto leikirnir hafa þróast mikið frá því að fyrst leikurinn kom út. Ég man enn eftir því að hafa burðast með hann á um 24 diskettum milli húsa, það voru reyndar margir komnir með skrifara þá, en ekki ég og félagi minn. Það var í þriðja leiknum sem sjónarhorn leikmannsins breyttist og hjálpaði það leiknum mjög mikið. Eftir það kom út leikurinn Grand Theft Auto Vice City og var það sá sem olli byltingunni. Í honum var allt hægt og umhverfi leiksins alveg frábært; Miami borg árið 1984. Í leiknum Grand Theft Auto Vice City Stories, er notast aftur við sama umhverfi, en ný aðalhetja er lent og auðvitað fylgir henni ný saga. Hetjan heitir Vic Vance og í upphafi leiksins er hann hermaður. Eftir að hafa hjálpað óheiðarlegum yfirmanni í einhverju braski er Vic svo rekinn úr hernum og nú reynast góð ráð dýr. Hægt og rólega þarf maður að vinna sig upp í glæpaheiminum, fyrst með ómerkilegum verkefnum á borð við að kúga búðareigendur en því lengra sem komið er verða verkefnin stórbrotnari og æsilegri. Eins og í fyrri leikjum er takmarkið að verða glæpakonungur borgarinnar, búa í risahúsi og eiga nóg af gúmmelaði til hliðar. Þessi leikur er tvímælalaust næst besti GTA leikurinn á eftir San Andreas að mínu mati. í fyrsta skipti er hægt að slást eitthvað fyrir alvöru í leiknum, en í fyrri leikjum gat maður aðeins kýlt liðið í munninn. Söguþráðurinn er furðu heillandi og fjörugur en það hefur kannski verið sterkasta hlið Rockstar-leikjanna hingað til. Tónlistin er frábær, en hægt er að velja milli ótal útvarpsstöðva sem spila tónlist sem var vinsæl árið 1984. Einnig er hægt að hlusta á spjallþætti sem eru massíft fyndnir. Þessi leikur er langt um betri en Liberty City Stories sem kom út á PSP í fyrra. Leikurinn er aðeins kominn út á PSP en er vonandi væntanlegur í aðrar tölvur. Ég er sáttur, verulega sáttur og með gott gúmmelaði til hliðar.Dóri DNA Eftir að hafa verið rekinn úr hernum þarf söguhetjan smátt og smátt að reisa glæpaveldi. .
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira