Krot á strætó orðið að vandamáli 16. desember 2006 12:45 Ómar Ágústsson segir að veggjakrot og þess háttar skemmdarverk muni versna til muna ef graffití fái ekki aðhald frá Reykjavíkurborg.
Í vikunni lak myndband á netið sem sýnir tvo unga drengi vinna skemmdarverk á strætisvagni með úðabrúsum. Skemmdarverk af þessu tagi eru ekki algeng á Íslandi en rekstrarstjóri Strætó segir að myndbandið sé ekki góðs viti. Ómar Ágústsson baráttumaður og áhugamaður um graff segir að málin muni bara versna, verði graff-listamönnum ekki veitt aðhald. „Þetta er ekki góðs viti," segir Einar Kristjánsson rekstrarstjóri Strætó um myndband sem hægt er að finna á heimasíðunni youtube.com, en þar sjást ungir og grímuklæddir drengir skrifa dulnefni sín með spreybrúsum á strætisvagn. Hingað til hefur það ekki tíðkast meðal graff-listamanna á Íslandi að ráðast utan á strætisvagna, en hugsast getur að „graffarar" ráðist á strætisvagna hér á landi á svipaðan hátt og þeir gera við lestir annarstaðar í Evrópu. „Helsta vandamálið hingað til hefur verið innan í vögnunum, en það gerist einstaka sinnum að krotað er á bílana sjálfa," segir Einar, en strætisvagnar eru fljótt teknir úr umferð eftir að krotað er á þá. „Við látum bílana ekki sjást með krotið á, en það gæti virkað eins og boð um enn meira krot." Það er bæði tímafrekt og dýrt að þrífa krot af strætisvagni og í einstaka tilfellum þarf að sprauta vagna upp á nýtt, sé ekki hægt að fjarlægja krotið án þess að skemma lakk bifreiðarinnar í leiðinni. Til þessa hefur árlegur kostnaður við skemmdarverk af þessu tagi verið í kringum tvö til þrjúhundruð þúsund krónur en nú fer hann stöðugt hækkandi. Einar bjó lengi í Kaupmannahöfn, þar sem hann starfaði við strætisvagnakerfið og vonar hann að vandamálið verði aldrei jafn alvarlegt og þar. Hann segir að vandamálið þar liggi einna helst í lestunum og að allt sé myndað í bak og fyrir. Að sögn Einars eru dæmi um að menn hafi verið sektaðir um hundruð þúsunda danskra króna og jafnvel dæmdir í fangelsi, séu þeir gripnir. „Ég vona að vandamálið verði ekki jafn alvarlegt hér, frekar einhver smá prakkarastrik sem hægt verður að stoppa. En þegar þetta er komið á netið þá er greinilegt að menn eru að skiptast á myndum og monta sig við hina, sem er ekki gott." Ómar Ágústsson, forsprakki samtakanna TFA og óformlegur talsmaður graff-listamanna á Íslandi segir að verknaðurinn sé afleiðing af hertri stefnu lögreglunnar og Reykjavíkurborgar í garð veggjakrots. „Það er alveg sjálfgefið að ef graffití fær hvergi aðhald og ekkert nema bönn, þá fer það sömu leið og í útlöndum," og bendir Ómar líka á að stórlega sé búið að fækka þeim veggjum sem voru eitt sinn leyfðir til veggjakrots. Ómar segir að svo lengi sem gröffurum sé bannað að iðka iðju sína, muni þeir ráðast á einkaeignir, strætisvagna og annað slíkt. „Það er varla hægt að kenna bara gröffurunum um þetta. Ef aðgerðirnar gegn graffití eru hertar, þá munu málin versna í samræmi við það. Um leið og mótspyrnan er aukin, þá er það bara eðli graffití-menningarinnar og hiphop-menningarinnar að streitast sterkar á móti." Einar Kristjánsson rekstrarstjóri strætó vonar að vandamálið verði ekki jafn alvarlegt og í nágrannalöndum okkar. . Brot úr myndbandi sem hægt er að finna á netinu, en þar ráðst veggjakrotarar á strætisvagna með úðabrúsann að vopni. . .
Mest lesið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Fleiri fréttir Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sjá meira