Sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum og efnum 7. júní 2006 12:37 Sigurbjörn Sveinsson formaður Læknafélag Íslands segir sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum og efnum.
Formaður læknafélagsins, Sigurbjörn Sveinsson, segir fólk sem þurfi að leita til hjartalækna ekki hafa sömu fjárhagslegu stöðu og aðra sem þurfi að leita sér lækninga. Það fyrirkomulag sem nú er í gildi mismuni fólki eftir sjúkdómi þeirra og efnum. Til útskýringar bendir Sigurbjörn á að erfitt geti reynst öldruðum og efnalitlu fólki að leggja út fyrir þeim rannsóknum sem það þarf að ganga í gegnum. Sigurbjörn bendir einnig á að þó sjúklingar geti fengið endurgreiðslu frá Tryggingastofnun eftir að hafa fengið greiðsluheimild frá heimilislækni geti falist í því mikil fyrirhöfn fyrir aldraða eða sjúka einstaklinga. Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að hyggist þau koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi, þá verði þær fyrirætlanir gerðar opinberar og ræddar undanbragðalaust með þátttöku þjóðarinnar. Stjórn Læknafélags Íslands lýsti í ályktun sem gerð var í gær yfir áhyggjum sínum yfir að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skuli ekki geta boðið landsmönnum þjónustu samningsbundinna hjartalækna. Ástæður þeirra stöðu sem hjartalæknar og sjúklingar þeirra eru nú komir í segir Sigurbjörn þá að hjartalæknar vildu ekki starfa lengur undir þeim samningum sem þeim voru gerðir. Ekki hafi verið ágreiningur um taxta heldur afsláttarákvæði sem fól í sér að læknum voru ætluð ákveðið mörg verk á ári og ef þeir fóru fram úr þeim fjölda áttu þeir að gefa ríkinu afslátt af verulegum hluta af andvirði verka þeirra. Litlar sem engar viðræður hafi verið til að rétta hlut þeirra.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira