Gagnrýni byggð á öfund 5. maí 2006 18:56
Aðalritstjóri Börsen, stærsta viðskiptablaðs Norðurlanda, segir danska kaupsýslumenn skiptast í tvo flokka varðandi innrás Íslendinga, þá sem sjái tækifæri og hina sem óttist samkeppni. Hann segir gagnrýnina oft byggja á öfundsýki, en hins vegar sé gagnrýni á fjármál hins opinbera réttmæt, þótt hann trúi því að hægt sé að ná mjúkri lendingu. Leif Beck Fallesen var gestur á ársfundi Útflutningsráðs í dag. Hann segir gagnrýni á íslenska fjárfesta í Danmörku skiptast í tvö horn, þá sem sjái tækifæri með nýjum fjárfestum og þá sem óttist að samkeppni aukist og nú síðast á fjölmiðlamarkaði. Hann segir dönsku morgunblöðin þegar farin að óttast fríblaðaútgáfu Dagsbrúnar í Danmörku. Beck Fallesen segir hins vegar gagnrýni á ríkisfjármálin réttmæta, enda margt þar gagnrýnivert. Hann hafi hins vegar trú á því að það takist að ná mjúkri lendingu og ástandið verði ekki eins og árið 1982 í Danmörku þar sem húsnæðisverð féll um fjórðung í langan tíma og hagvöxtur var nánast enginn. Hann tekur undir að gagnrýnin í Danmörku byggist oft á öfund. Hann segir íslenska fjárfesta ekki óvinsæla í Danmörku, en menn undrist hvað þeir séu tilbúnir að greiða hátt verð fyrir fasteignir, of hátt að sumra mati. Hvað varðar kaup Íslendinga á rótgrónum dönskum fyrirtækjum eins og Magasin du Nord og Illum, segir hann hinn almenn Dana ekki kippa sér upp við það, en hins vegar hafi þau kaup farið dálítið illa í danska bankamenn og kaupsýslumenn sem lengi hafi reynt að kaupa þessi fyrirtæki.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira