Innlent

Leituðu að báti úti fyrir Seltjarnarnesi

MYND/Vilhelm

Umfangsmikil leit var gerð úr lofti, á sjó og með ströndum úr af norðanverðu Seltjarnarnesi og á voginum út af Ánanaustum í gærkvöldi eftir að tilkynningar bárust neyðarlínunni um að þar væri að líkindum hálfsokkinn bátur.

Öll björgunarskip af höfuðborgarsvæðinu og leitarflokkar voru kölluð út um klukkan sex og þyrla Landhelgisgæslunnar klukkustund síðar. Hún leitaði með ljóskastara og áhöfnin var búin næutrsjónaukum og beitti hitamyndavélum. Leitarskilyrði voru í alla staði góð og kannað var í landi hvort nokkurs báts væri saknað, en án árangurs og var leit hætt klukkan tíu í gærkvöldi. Einna helst er hallast að því að hvalur hafi verið þarna á ferð og villt um fyrir sjónarvottum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×