Innlent

Unglingsstúlkur í brjóstastækkanir

Dæmi eru um að stúlkur allt niður í fimmtán ára aldur leiti til lýtalækna til að breyta útliti sínu. Lýtalæknar segja að slíkt sé aðeins gert í undantekninga tilfellum og þá helst ef sálfræðingur vísi þeim til þeirra.

Lýtalæknirinn Ottó Guðjónsson sagðist kannast við að svo ungar stúlkur gengjust undir útlitsbreytingar þó hann legði á það ríka áherslu að slíkt væri aðeins gert í undantekninga tilvikum.

Blaðið fjallaði um þetta mál fyrir skemmstu og svaraði Guðmundur Már Stefánsson lýtalæknir spurningum um hvers vegna slíkar aðgerðir væru framkvæmdar á þann veg að slík úrræði væru notuð væru sálarástand viðkomandi og í samráði við sálfræðinga og geðlækna.

Björn Harðarson sálfræðingur kvaðst orðlaus þegar fréttamaður NFS spurði hann hvort rétt væri að sálfræðingar legðu útlitsbreytingar til við fólk sem ætti í erfiðleikum með sjálfsmynd sína, slíkt sagðist hann aldrei hafa heyrt um og benti á að sálfræðingar hafi alla jafna lagt áherslu á að fólki liði vel með sjálfu sér eins og það væri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×