Forsætisráðherra ræðir við formenn stjórnmálaflokka um breytingar á eftirlaunalögunum 6. janúar 2006 19:11
Formaður Samfylkingarinnar segir að boltinn sé nú aftur í Forsætisráðuneytinu um hvernig standa eigi að því að breyta lögunum þannig að fyrrverandi ráðherrar sem gegna hálaunastöðum hjá hinu opinbera geti ekki jafnhliða þegið eftirlaun sem ráðherrar.Forsætisráðherra skipaði nefnd lögfræðinga í fyrravetur til að kanna hvaða leiðir væru færar í því skyni að breyta lögunum. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að erfitt gæti reynst að taka réttindi af þeim sem þegar þæðu eftirlaun samkvæmt gildandi lögum. Það væri hinsvegar hægðarleikur að breyta lögum á þann veg að sporgöngumennirnir hefðu ekki þennan möguleika til tvítöku. Lögfræðiálitið fór síðan til kynningar í forsætisnefnd alþingis sem lagði fram eftirlaunafrumvarpið á sínum tíma. Forsætisráðherra ræddi svo tvívegis við alla formenn stjórnmálaflokka nú í desember til að kanna vilja til breytinga. Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður forsætisráðherra segir að ekki hafi náðst sátt um hvernig ætti að breyta lögunum. Forsætisráðherra hafi lagt fram ákveðnar hugmyndir sem ekki hafi fengið hljómgrunn hjá öllum flokkum. Þær hugmyndir séu trúnaðarmál. Formenn flokkanna þurfi að taka afstöðu til breytinganna ekki sé hægt að breyta nema í góðu samkomulagi allra flokka. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist líta svo á að boltinn sé hjá ráðherra og málið verði tekið upp þegar þing kemur aftur saman. Hún segist fylgjandi því að alfarið verði snúið til baka og réttindin afnumin hjá þeim sem þegar þiggja eftirlaun ásamt því að vera í hálaunastöðum. Málið sé vissulega umdeilt meðal lögmanna en hún hallist frekar á sveif með þeim sem telji að hægt sé að snúa til baka.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira